Hjallastefnan
Hjallastefnan
Hjallastefnan

Barnaskóli Hjallastefnunnar í Garðabæ, Vífilsstöðum - Umsjónarkennsla á yngsta stigi

Laus er 100% staða umsjónarkennara á yngsta stigi við Barnaskóla Hjallastefnunnar í Garðabæ

Um er að ræða umsjónarkennslu á yngsta stigi. Hjallastefnan er með kjarasamning við FG með ákvæði um aukna viðveru með börnum og fyrir það eru greiddir auka launaflokkar.

Í Barnaskólanum starfar einstaklega flottur og jákvæður hópur fólks og því leitum við að jákvæðum og lífsglöðum kennurum sem er tilbúnir að tileinka sér starfshætti Hjallastefnunnar af gleði og kærleika. Viðkomandi þurfa að sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og hafa áhuga á jafnrétti og lýðræði í skólastarfi. Námsumhverfið er mjög lifandi þar sem sköpun er í fyrirrúmi því ekki er um bókastýrða kennslu að ræða.

Barnaskóli Hjallastefnunnar í Gaðabæ er í einstaklega fallegu og skemmtilegu umhverfi með Heiðmörkina í bakgarðinum. Skólann sækja börn á aldrinum 5-10 ára. Jafnréttisuppeldi, skapandi hugsun, félagsþjálfun og einstaklingsstyrking eru innviðir hugmyndafræðinnar sem við teljum að geti skipt sköpum í þroska komandi kynslóða. Við hvetjum öll kyn til að sækja um starfið.

Helstu verkefni og ábyrgð

Umsjónarkennsla á yngsta stigi

Menntunar- og hæfniskröfur

Leyfisbréf til kennslu á grunnskólastigi 

Fríðindi í starfi

Frír hádegismatur, vinnufatnaður,

Auglýsing birt29. september 2026
Umsóknarfrestur30. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Barnaskólinn Garðabæ
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.KennariPathCreated with Sketch.KennslaPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Sveigjanleiki
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar