Leikskólinn Mánaland
Leikskólinn Mánaland

Leikskólakennarar

Leikskólinn Mánaland óskar eftir að ráða leikskólakennara sem hafa áhuga á að ganga til liðs við hóp faglegs starfsfólk og taka þátt í að þróa starfið ásamt því að vera hluti af samfélaginu okkar. Við hugsum stórt og erum að flytja inn í nýjan 60 barna leikskóla í ágúst.

Leikskólinn Mánaland er heilsueflandi leikskóli staðsettur í Vík í Mýrdal. Lögð er áhersla á holla og góða næringu auk góðrar almennrar lýðheilsu. Mánaland er fjölmenningarlegur leikskóli og teljum við að öll börn geti notið sín á sínum forsendum. Styrkleiki leikskólans felst í fjölbreytni; það er í lagi að vera ólíkur öðrum. Við leikum, lærum og eigum í samskiptum án fordóma. Lögð er áhersla á að efla samvinnu og samkennd í barnahópnum auk þess að byggja upp jákvæða sjálfsmynd allra barna þannig að þau geti sýnt styrkleika sína og þekkingu.

Sveitarstjórn samþykkti nýlega breytingar í leikskólaþjónustu með það að markmiði að bæta enn frekar náms- og starfsumhverfi leikskólans þannig að tryggja megi stöðugleika í starfinu, farsæld barna og velferð og vellíðan starfsfólks ásamt því að gera starfsumhverfi leikskólans aðlaðandi. Breytingarnar sem verða innleiddar í haust eru meðal annars að hámarksvistunartími barna verði 35 klst. á viku, tveir skráningardagar verða innleiddir vegna foreldraviðtala, vinnustytting starfsfólks verður tekin út með lokun skólans, fjórir dagar verða sérstaklega skilgreindir vegna undirbúnings leikskólastarfs og sex starfsdagar á ári.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara.
  • Þátttaka í innleiðingu nýs skóladagatals, gerð skólanámskrár og mati á starfsemi leikskólans.
  • Þátttaka í mótun og uppbyggingu nýja leikskólans.
  • Þátttaka í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra.
  • Náið samstarf við foreldra/forráðamenn barnanna.
  • Stuðlar að gleði barna og ánægju foreldra ásamt gæðum í skólastarfi.
  • Önnur tilfallandi verkefni sem falin eru af yfirmanni.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf leikskólakennara.
  • Góð íslenskukunnáttu skilyrði (á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum).
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum.
  • Reynsla og þekking á leikskólastarfi.
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Skapandi hugsun og metnaður í starfi.
  • Hæfni til að taka þátt í lærdómssamfélagi í þróun.

Við bjóðum upp á:

  • Vinnustyttingu sem tekin er út með haustfríi, jólafríi og í Dymbilviku.
  • Skipulagða undirbúningstíma utan deildar.
  • Tímabundin viðbótarlaun (TV-einingar).
  • Heilsuræktar- og sundkort á vegum sveitarfélagsins.
  • Sveitarfélagið aðstoðar við flutning og öflun húsnæðis fyrir fagfólk sem flytur til okkar.
  • Tækifæri til símenntunar.
  • Umfram allt skemmtilegan vinnustað.

Um framtíðarstarf er að ræða og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf ekki síðar en 06.08.2024 en fyrr ef hægt er. Starfshlutfall er 100%.

Umsóknarfrestur er til og með 22. júlí 2024. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ítarleg starfsferilskrá. Umsóknir án ferilskráa verða ekki teknar til greina. Allir einstaklingar sem ráðnir eru til starfa á Mánalandi þurfa að gefa heimild til upplýsingaröflunar úr sakaskrá. Ef ekki fæst leikskólakennari til starfa verður ráðinn leiðbeinandi eða starfsmaður með aðra uppeldismenntun og/eða reynslu.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands við Félags leikskólakennara.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Tekið verður mið af jafnréttisstefnu Mýrdalshrepps við ráðningu í starfið. Áhugasamir einstaklingar, óháð kynþætti, þjóðernisupprunna, trú, lífsskoðun, fötlun, skertri starfsgetu, aldri, kynhneigð, kynvitund, kyneinkennum eða kyntjáningu, eru hvattir til að sækja um. Karlmenn og kynsegin eru sérstaklega hvött til að sækja um í ljósi ríkjandi kynjahlutfalls innan leikskólans, sbr. 19. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020.

Nánari upplýsingar um starfið veita Nichole Leigh Mosty leikskólastjóri (manaland@manaland.is) og Thelma Kristín Kvaran, ráðgjafi hjá Intellecta (thelma@intellecta.is) í síma 511 1225.

Auglýsing stofnuð3. júlí 2024
Umsóknarfrestur22. júlí 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Mánabraut 3-5, 870 Vík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.KennariPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Sveigjanleiki
Starfsgreinar
Starfsmerkingar