IÐAN fræðslusetur
IÐAN fræðslusetur

Leiðtogi Málm- og véltæknigreina

Vilt þú vinna við að skapa eitthvað nýtt?

Leiðtogi Málm- og véltæknigreina

Við leitum að framsæknum leiðtoga til að leiða fræðslu og þjónustu IÐUNNAR gagnvart málm- og véltæknigreinum. Í þeim tilgangi þróar leiðtoginn sterka faglega sérhæfingu IÐUNNAR í viðkomandi greinum og skapar sterk tengsl við fagmenn/faggreinarnar.

Leiðtogi málm- og véltæknigreina er nýtt starf innan IÐUNNAR sem kallar á framsýni og frumkvæði gagnvart greinunum. Skilvirkt samstarf þarf við deildir IÐUNNAR um framkvæmd mála og við fagráð greinanna þar sem fræðslu- og þjónustuþarfir mótast.

Um þig:

  • Þú hefur brennandi áhuga á fræðslu málm- og véltæknigreina.
  • Tekur auðveldlega frumkvæði og átt gott með að leiða samstarf á farsælan hátt.
  • Hefur reynslu af samstarfi í atvinnulífinu.
  • Ert árangursdrifinn einstaklingur og með framúrskarandi samskiptafærni.
  • Þú hefur menntun sem nýtist í starfi, á sviði málm- og véltæknigreina auk framhaldsmenntunar.
  • Býrð yfir þjónustulund og færni í mannlegum samskiptum.
  • Hefur stafræna styrkleika.
  • Ert framsækinn, skapandi og metnaðarfullur einstaklingur.
Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun sem nýtist í starfi, á sviði málm- og véltæknigreina auk framhaldsmenntunar.
Einstaklingur með þekkingu og reynslu af samstarfi í atvinnulífinu. Innsýn og reynsla af fræðslustarfi er kostur.
Umtalsverð þekking og áhugi á iðnaðinum, mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti, skipulögð, sjálfstæð og öguð vinnubrögð, framúrskarandi samskiptafærni, frumkvæði og árangursdrifni.
Menntun í kennslufræði og/eða reynsla af kennslu er kostur.
Félagslega sinnaður einstaklingur sem á auðvelt með að takast á við fjölbreytileg verkefni, vinna í hópi, túlka sameiginlegan ávinning ólíkra aðila og leiða
Helstu verkefni og ábyrgð
Skipulagning á fræðslustarfi fyrir málm- og véltæknigreinar.
Þróa leiðir til fyrirtækjafræðslu fyrir málm- og véltæknigreinar.
Samstarf við lykilfólk í greinunum og uppbygging tengslanets.
Fyrirtækjaheimsóknir og eftirfylgni verkefna.
Þátttaka í umsögnum um fagtengd mál.
Undirbúningur og eftirfylgni Fagráðsfunda.
Auglýsing birt8. apríl 2022
Umsóknarfrestur20. apríl 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar