

Leiðbeinandi
OsteoStrong – The Ultimate Biohack
Finnst þér gaman að sjá fólk taka framförum? Hefur þú gaman að nýjungum? Finnst þér gott að geta skilið vinnuna eftir í vinnunni?
OsteoStrong hefur verið starfandi í rúm þrjú ár á Íslandi. Hjá fyrirtækinu vinnur fólk með ýmsan bakgrunn, til dæmis húkrunarfræðingur, íþróttafræðingar og einkaþjálfarar. Vikulega tökum við á móti 900 meðlimum á tveimur stöðvum á höfuðborgarsvæðinu. Með ástundun hjá OsteoStrong einu sinni í viku á innan við 20 mínútum ná meðlimir að styrkja vöðva og bein, bæta jafnvægi, lækka blóðsykur og minnka alls kyns verki svo um munar. Nú þegar höfum við náð að hjálpa mörgum en sífellt bætist í hópinn og því þurfum við þína hjálp.
Eftirsóknarvert væri að einstaklingur væri sjúkraþjálfi, íþróttafræðingur, hjúkrunarfræðingur eða með aðra fagmenntun og innsýn sem nýtist í starfi. Einnig erum við að leita að áhugafólki um heilsu og lífsgæði sem hafa annan bakgrunn. Allir fá kennslu í því hvernig á að sinna meðlimum OsteoStrong og fylgjast með árangri.
Starfið felst í því að veita meðlimum hágæða þjónustu með því að leiða þau í gengum æfingar og tryggja að upplifum þeirra af OsteoStrong kerfinu sé sem best. Einnig að bóka fyrir þau tíma og ýmsilegt annað sem fellur til í litlu fyrirtæki. Starfstíminn er frá 8 til 17 en til 18 einn dag í viku.
OsteoStrong er rekið í Hátúni 12 og Ögurhvarfi 2.
Rík þjónustulund, alúð, einlægni, samkennd og hlýja er nauðsynleg.
Hæfniskröfur:
- Menntun sem nýtist í starfi.
- Stundvísi.
- Þjónustulund.
- Sjálfstæð vinnubrögð.
- Snyrtimennska
- Skipulagshæfni og frumkvæði.
- Góð íslenskukunnátta
Umsókn um starfið þarf að fylgja starsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Eftirsóknarvert væri að umsækjandi gæti hafið störf í byrjun ágúst.











