
Bera hf.
Bera er móðurfélag öflugrar samstæðu fyrirtækja á sviði drykkjarvöru- og matvælaframleiðslu, innflutnings og dreifingar. Félagið er skráð í kauphöll og fer með eignarhald á leiðandi rekstrarfélögum sem gegna mikilvægu hlutverki á íslenskum markaði.
Nafnið Bera hefur sterka sögulega tengingu við uppruna Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar og endurspeglar rætur, styrk og metnað samstæðunnar til framtíðar.
Dótturfélög Beru starfa sjálfstæð og sérhæfð rekstrarfélög sem hvert um sig byggir á traustum grunni þekkingar og reynslu:
• Ölgerðin er leiðandi fyrirtæki á drykkjarvörumarkaði á Íslandi.
• Danól – sérhæfir sig í innflutningi og markaðssetningu vörumerkja.
• Gæðabakstur – framleiðir og dreifir ferskum og gæðamiðuðum bakarísvörum.
• Kjarnavörur – framleiðir og dreifir fjölbreyttum mat- og neysluvörum.
Hlutverk Beru er að styðja við verðmætasköpun og sjálfbæran vöxt innan samstæðunnar. Félagið mótar heildarstefnu, tryggir skilvirka stoðþjónustu og skapar tækifæri til frekari þróunar og nýsköpunar.
Undir móðurfélaginu er meðal annars sameinuð þjónusta á sviði mannauðsmála, fjármála, stafrænnar þróunar, upplýsingatækni, gæðamála, sjálfbærni, innkaupa og vöruhúsareksturs. Með því nýtist stærðarhagkvæmni betur og rekstrarfélögin geta einbeitt sér að sinni kjarnastarfsemi og þjónustu við viðskiptavini.
Bera leggur áherslu á ábyrga stjórnarhætti, sjálfbærni og langtímahugsun í öllum sínum verkefnum. Markmið félagsins er að byggja upp öfluga og samkeppnishæfa samstæðu sem skapar verðmæti fyrir viðskiptavini, starfsfólk, hluthafa og samfélagið í heild.
Þjónustustjóri
Við leitum að öflugum og lausnamiðuðum þjónustustjóra til liðs við okkur í vöruhús Beru.Bera er móðurfélag öflugrar samstæðu fyrirtækja á sviði drykkjarvöru- og matvælaframleiðslu, innflutnings og dreifingar. Dótturfélög Beru eru m.a. Ölgerðin og Danól. Bera rekur stórt og tæknilegt vöruhús með u.þ.b 100 starfsmönnum sem sjá um móttöku og afgreiðslu pantana til viðskiptavina.Þjónustustjóri gegnir mikilvægu hlutverki í daglegum rekstri vöruhúss og dreifingar og er tengiliður við meðal annars bílstjóra, söluteymi og aðrar einingar fyrirtækisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Dagleg þjónusta við vöruhús, dreifingu og aðra innri viðskiptavini
- Verkumsjón og forgangsröðun pantana
- Samskipti og þjónusta við sölumenn og bílstjóra
- Stuðningur við stjórnendur og aðra hagaðila
- Eftirfylgni með gæða-, öryggis- og þjónustumálum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af þjónustu og/eða sölu
- Góð íslenskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli er nauðsynleg
- Reynsla af stjórnun eða verkstjórn er kostur
- Góð tölvukunnátta
- Framúrskarandi samskipta- og skipulagshæfni
- Sjálfstæð, nákvæm og lausnamiðuð vinnubrögð
- Rík þjónustulund og hæfni til að takast á við fjölbreytt verkefni
Auglýsing birt21. september 2026
Umsóknarfrestur5. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Grjótháls 7-11, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)



