Karlkyns stuðningsfulltrúi - Setbergsskóli
Setbergsskóli óskar eftir að ráða stuðningsfulltrúa í 65-70% starfshlutfall. Eðli starfsins vegna þarf stuðningsfulltrúinn að vera karlkyns, t.d. fylgd í sundkennslu.
Setbergsskóli var stofnaður árið 1989 og eru nemendur um 430 talsins. Góður starfsandi og jákvæð samskipti einkenna starfmannahópinn og er vellíðan nemenda og starfsfólks ávallt höfð að leiðarljósi. Við skólann er unnið metnaðarfullt starf með sérstakri áherslu á fjölbreytt námsumhverfi, læsi, sköpun, lýðræði og uppbyggjandi endurgjöf. Allir nemendur í 5. – 10. bekk hafa spjaldtölvur til umráða og yngri nemendur hafa einnig aðgang að slíkum tækjum.
Skólinn er staðsettur í fallegu umhverfi sem býður upp á mikla möguleika til útiveru. Einkunnarorð skólans eru virðing, víðsýni og vellíðan og grundvallast starf skólans á þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og samkvæmt hugmyndafræði Olweusar gegn einelti og andfélagslegri hegðun. Nánari upplýsingar um skólann og það öfluga starf sem þar er unnið er að finna á heimasíðu skólans, setbergsskoli.is.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Starfar með nemendum með sértækan vanda
- Aðstoðar við faglegt starf undir leiðsögn kennara og stjórnenda
- Tekur þátt í skipulagningu, undirbúningi og framkvæmd skólastarfs
- Aðstoðar nemendur við daglegar þarfir
- Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við fagfólk og foreldra
- Aðstoðar nemendur í matsal og við undirbúning matmálstíma
- Sinnir frímínútnagæslu, fylgd og gæslu í daglegu skólastarfi
- Leitast við að virkja sem flesta óháð getu eða þroska í fjölbreytt verkefni og taka fullan þátt í þeim verkefnum og viðburðum sem eru skipulögð
- Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Gerð er krafa um sérstakt nám fyrir stuðningsfulltrúa, t.d. úr Borgarholtsskóla eða sambærilegt nám
- Reynsla af starfi með börnum
- Íslenskukunnátta skilyrði
- Almenn tölvukunnátta
- Mikill áhugi og metnaður til að starfa með börnum
- Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Stundvísi og samviskusemi
Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.
Ef ekki fæst einstaklingur í starfið sem uppfyllir námskröfur fyrir stuðningsfulltrúa, kemur til greina að ráða inn einstakling í starfsheitið: Skóla og frístundaliði
Umsóknarfrestur er til og með 13. október 2024, ráðið er í starfið sem fyrst.
Ferilskrá fylgir umsókn.
Nánari upplýsingar um starfið veitir María Pálmadóttir, skólastjóri, í síma 5651011 eða í gegnum netfangið maria@setbergsskoli.is.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.