Breiðablik
Breiðablik

Íþróttastjóri

Breiðablik leitar að öflugum einstaklingi í spennandi starf íþróttastjóra.

Helstu verkefni:

  • Forysta um mótun íþrótta- og þjálfunarstefnu félagsins, umsjón með framkvæmd og eftirfylgni
  • Samskipti og samstarf við allar deildir Breiðabliks, foreldra, iðkendur, ÍSÍ, sérsambönd og önnur félög ásamt skóla- og frístundasviði bæjarins
  • Úthlutun æfingatíma í samráði við framkvæmdastjóra
  • Skipulagning sumarnámskeiða, íþróttaskóla barna og íþróttir eldri borgara
  • Aðstoða deildir og foreldraráð við skipulagningu fjáraflanna, mótahalds og annarra viðburða
  • Umsjón með fræðslu- og forvarnastarfi
  • Ábyrgð á ýmsum upplýsingum á heimasíðu eins og æfingatöflum deilda

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólapróf og/eða mikil reynsla sem nýtist í starfi
  • Þekking og skilningur á starfsemi íþróttafélaga
  • Framúrskarandi hæfni í samskiptum
  • Drifkraftur og hæfni til að leiða verkefni og/eða hópa
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð tölvukunnátta
  • Góð kunnátta í íslensku bæði í ræðu og riti er skilyrði
Auglýsing birt3. september 2021
Umsóknarfrestur20. september 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Dalsmári 5, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.ÍþróttafræðingurPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar