Flóaskóli
Flóaskóli
Flóaskóli

Íslensku- og sviðslistakennari við Flóaskóla

Flóaskóli er staðsettur í Villingaholti í Flóahreppi, í um 20 mínútna akstursfjarlægð frá Selfossi. Í skólanum eru um 110 nemendur í 1.-10. bekk og um 30 starfsmenn. Við skólann starfar öflugur og metnaðarfullur hópur fólks sem vinnur samhent að því að skapa jákvætt og uppbyggjandi vinnuumhverfi, hlúa vel að nemendum og stuðla að því að þeir nái að vaxa og dafna í námi og starfi. Í Flóaskóla er lögð áhersla á einstaklingsmiðað nám, teymiskennslu, leiðsagnarnám og öfluga stoðþjónustu. Mikil áhersla er á list- og verkgreinar. Skólinn er UNESCO skóli, heilsueflandi grunnskóli og þátttakandi í grænfánaverkefninu. Unnið er samkvæmt hugmyndafræði "Uppeldi til ábyrgðar" og unnið er markvisst með samskipti og líðan nemenda.

Laus er 50-80% staða kennara. Kennslugreinar eru íslenska á elsta stigi og sviðslistir.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ eða viðeigandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar veitir Þórunn Jónasdóttir skólastjóri í síma 7718342 eða í tölvupósti á [email protected]

Umsóknarfrestur er til og með 8. apríl 2025. Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2025.

Helstu verkefni og ábyrgð

Að skipuleggja nám og kennslu nemenda í samráði við skólastjórnendur og samstarfskennara. Með áherslu á íslenskunám eldri nemenda.

Að skipuleggja og stýra sviðslistanámi nemenda.

Að vinna í teymi með öðrum starfsmönnum skólans.

Að stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra/forráðamenn og starfsfólk skólans.

Að stuðla að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og annað samstarfsfólk.

Menntunar- og hæfniskröfur

Kennari, uppeldismenntun eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi, leyfisbréf til kennslu, reynsla af kennslu mikilvæg.

Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum.

Mjög góð íslenskukunnátta og færni í upplýsinga- og tæknimálum.

Reynsla af sviðslistum, æskilegt að viðkomandi hafi reynslu af leikstjórn og söngleikjauppfærslum.

Skipulögð vinnubrögð og hæfni í samvinnu.

Frumkvæð, sjálfstæði í vinnubrögðum og vilji til að leita nýrra leiða í skólastarfi.

Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.

Stundvísi og samviskusemi.

 

Auglýsing birt25. mars 2025
Umsóknarfrestur8. apríl 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Flóaskóli Villingaholti
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar