Advania
Advania
Advania

Hugbúnaðarsérfræðingur í Rafrænni stjórnsýslu

Advania leitar eftir metnaðarfullum hugbúnaðarsérfræðingi til starfa í Rafræna stjórnsýslu, innan hugbúnaðarlausna Advania. Rafræn stjórnsýsla sérhæfir sig í ráðgjöf og þróun á lausnum sem tengjast stafrænni vegferð opinberra aðila. Verkefnin eru að ýmsum toga en markmið lausnanna er að nýta tæknina til þess að styðja við ferla viðskiptavina með snjöllum hætti.
Ef þú ert með bakgrunn í tölvunarfræði eða hugbúnaðarverkfræði þá hvetjum við þig til að sækja um. Við bjóðum uppá spennandi og gott vinnuumhverfi með fjölbreyttum verkefnum og tækifærum.
Starfssvið
  • Samskipti við hagsmunaaðila
  • Greining, hönnun og útfærsla á hugbúnaði
  • Teymisvinna
Hæfniskröfur
  • Menntun á sviði tölvunarfræði eða hugbúnaðarverkfræði
  • Þekking af þróun í .NET C#, Javascript, HTML, CSS, SQL
  • Þekking og reynsla af þróun í React er kostur
  • Reynsla af Scrum/Agile
  • Góð samskipta- og greiningarfærni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Auglýsing birt30. nóvember 2023
Umsóknarfrestur12. desember 2023
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Guðrúnartún 10, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar