Ísprjón ehf
Ísprjón ehf
Ísprjón ehf

Grafískur hönnuður – tímabundið starf (50–100%)

Ísprjón ehf leitar að grafískum hönnuði í tímabundið starf í 3–6 mánuði. Starfshlutfall 50–100% eftir samkomulagi.

Um okkur

Ísprjón ehf er lítið fjölskyldufyrirtæki í Hafnarfirði sem hannar, framleiðir og selur íslenskar vörur – meðal annars húðvöru- og heimilisilmvörumerkið Spa of Iceland – og rekur vefverslunina Icelandic Store. Vörurnar eru seldar í verslunum um land allt, í fríhöfninni og á netinu, bæði í smásölu og heildsölu. Við erum að endurútgefa heila vörulínu í nýjum umbúðum og vantar öflugan hönnuð til að fylgja því eftir.

Helstu verkefni

  • Hönnun umbúða: hulsur, kassar, gjafakassar og merkimiðar
  • Útlit og grafík á nýjum vörum
  • Vefborðar, vefmyndir og vörumyndir fyrir vefverslun og heildsöluvef
  • Efni fyrir samfélagsmiðla, herferðir og söluefni fyrir endursöluaðila (katalógur, vörublöð)
  • Frágangur prentskráa í samstarfi við prentsmiðjur og umbúðabirgja (dielines, litir, bleed)
  • Ýmis önnur grafík eftir þörfum

Hæfniskröfur

  • Menntun og/eða reynsla í grafískri hönnun
  • Mjög góð kunnátta í Adobe Illustrator, Photoshop og InDesign
  • Reynsla af umbúðahönnun og prentundirbúningi
  • Gott auga fyrir heildarútliti vörumerkis og geta til að vinna innan þess
  • Sjálfstæð, skipulögð vinnubrögð og hæfni til að skila á réttum tíma
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð

Ýmis grafík eftir þörfum

Auglýsing birt11. september 2026
Umsóknarfrestur30. september 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Valkvætt
Mjög góð
Staðsetning
Miðhella 4, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar