Ísprjón ehf
Ísprjón ehf
Ísprjón ehf

Pökkun og lagerstörf – hlutastarf (mánudagar og miðvikudagar), tímabundið

Ísprjón ehf leitar að traustum og skipulögðum starfsmanni í hlutastarf við pökkun og lagerstörf. Starfið er tvo daga í viku, á mánudögum og miðvikudögum á skrifstofutíma. Hlti af degi kemur til greina eða jafnvel aðrir dagar. Sveigjanlegur vinnutími.

Um okkur

Ísprjón ehf er fjölskyldufyrirtæki í Hafnarfirði sem hannar, framleiðir og selur íslenskar vörur – meðal annars húðvöru- og heimilisilmvörumerkið Spa of Iceland – og rekur vefverslunina Icelandic Store. Vörurnar eru seldar í verslunum um land allt, í fríhöfninni og á netinu, bæði í smásölu og heildsölu.

Helstu verkefni

  • Tiltekt og pökkun pantana úr vefverslun og til endursöluaðila
  • Frágangur sendinga og skráning í flutningskerfi
  • Móttaka á vörum, talning og frágangur á lager
  • Samsetning gjafakassa og einfaldur frágangur á vörum
  • Umhirða og snyrtilegt lagerumhverfi
  • Tiltekt og pökkun pantana úr vefverslun og til endursöluaðila
  • Frágangur sendinga og skráning í flutningskerfi
  • Móttaka á vörum, talning og frágangur á lager
  • Samsetning gjafakassa og einfaldur frágangur á vörum
  • Umhirða og snyrtilegt lagerumhverfi

Hæfniskröfur

  • Nákvæmni, snyrtimennska og stundvísi
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Þarf að geta unnið standandi og lyft léttum til meðalþungum kössum
  • Góð íslensku- eða enskukunnátta
  • Reynsla af lager- eða pökkunarstörfum er kostur
Auglýsing birt11. september 2026
Umsóknarfrestur30. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Valkvætt
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Miðhella 4, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar