
Byko
BYKO rekur eina stærstu byggingavöruverslun landsins í Breiddinni í Kópavogi, auk verslana á höfuðborgarsvæðinu og víða um land.
Saga BYKO hófst árið 1962 þegar Guðmundur H. Jónsson og Hjalti Bjarnason opnuðu fyrstu BYKO verslunina við Kársnesbraut í Kópavogi. Frá upphafi kappkostuðu félagarnir að veita viðskiptavinum sínum, fagmönnum jafnt sem almennum húsbyggjendum, framúrskarandi þjónustu. Þessi gildi frumkvöðlanna lögðu grunninn að uppbyggingu fyrirtækisins sem nú er leiðandi í sölu á byggingavörum hér á landi.
BYKO er fjölskyldufyrirtæki og skilar það sér í menningu félagsins. Hjá BYKO starfar fjölbreyttur hópur fólks af fagmennsku, framsækni og með gleðina í fyrirrúmi. Markmið okkar er ávallt að veita viðskiptavinum okkar og starfsfólki bestu heildarupplifunina af BYKO.
Við hjá BYKO trúum við því að starfsfólkið okkar sé okkar mikilvægasta auðlind til að ná árangri. Því hefur félagið sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun starfsfólks af BYKO sem vinnustað. Lykillinn að því að fá gott starfsfólk til starfa er að hafa gott orðsport, sterka ímynd og vinnustað sem starfsfólk mælir með. Framtíðarsýn okkar vinnur að því markmiði.
Við erum stolt af því að vera vottuð sem frábært vinnustaður af Great Place to Work. Við leggjum áherslu á að stuðla að trausti, vellíðan og helgun meðal okkar starfsfólks og er vinnustaðagreining Great Place to Work okkar verkfæri í þeirri vegferð.
Við leggjum áherslu á að mæta starfsfólki okkar þar sem það er á hverjum tíma. Fríðindi starfsfólks stuðla að heilbrigðari vinnustaðamenningu þar sem er sveigjanleiki og góð samþætting á vinnu og einkalífi.
BYKO hefur fengið vottun á jafnlaunakerfi sitt og hefur með því skuldbundið sig til að greiða starfsfólki sem sinna sömu eða sambærilegum störfum sambærileg kjör. Félagið undir gengur árlega úttekt af utanaðkomandi óháðum aðila til að viðhalda vottun félagsins.
Við bjóðum starfsfólki okkar upp á:
• Fjárhagslegan styrk í allt að þrjá mánuði í fæðingar- og
foreldraorlofi
• Samgöngustyrk
• Velferðarstyrk
• Aðgang að velferðarþjónustu Heilsuverndar
• Líkamsræktartyrk
• Frí rafbílahleðsla á flestum starfsstöðvum
• Sturtuaðstöðu á starfsstöðvum
• Sveigjanlegt og fjölskylduvænt starfsumhverfi
• Niðurgreiðsla á hádegismat
• Afsláttur á vörum í verslun
• Árshátíð og haustfögnuð
• Jólagjöf og páskagjöf
• Gjafir vegan starfsaldurs
• Fjarvinnu hluta úr viku fyrir störf þar sem það er möguleiki
Stjórnendur og starfsfólk BYKO leggja mikla áherslu á að styrkja starfsemina og bæta þjónustuna við viðskiptavini sína.
Á síðari árum hefur BYKO haslað sér völl erlendis, meðal annars með uppbyggingu á öflugu timburfyrirtæki í Lettlandi. Þar er unnið timbur og timburafurðir auk þess framleiðir verksmiðjan glugga og hurðir úr timbri, svo og álklædda timburglugga.

Hópstjóri - þjónustuver
Við hjá BYKO erum að leita að öflugum hópstjóra til þess að stýra þjónustuveri BYKO.
Ef þú ert framsækinn og faglegur einstaklingur með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Utanumhald mannskaps og vakta
- Utanumhald og eftirfylgni með lykilmælikvörðum þjónustuvers
- Hámarka þjónustuupplifun viðskiptavina með stefnu BYKO að leiðarljósi
- Svörun erinda frá viðskiptavinum sé innan ákveðinna tímamarka
- Uppsetning, innleiðing og eftirfylgni á gæða-og þjónustustöðlum BYKO
- Nýting tæknilausnar til að einfalda og straumlínulaga störf og ferla innan þjónustuvers með hag viðskiptavina í huga
- Efla og viðhalda góðum samskiptum innan teymis og við aðrar deildir innan félagsins
- Skapa jákvætt og hvetjandi vinnuumhverfi
- Hvetja til lausnamiðaðrar hugsunar, nýsköpun og notkunar á snjöllum lausnum
Við leitum að einstaklingi með:
- Reynslu af sambærilegum störfum
- Menntun sem nýtist í starfi
- Framúrskarandi samskiptafærni
- Skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
- Frumkvæði og faglegur metnaður
- Mjög góð tölvukunnátta og vilja til að nýta nýja tækni
- Góða íslenskukunnátta skilyrði
BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.
Allar nánari upplýsingar veitir Sveinborg Hafliðadóttir ([email protected]), mannauðs- og stefnustjóri.
Auglýsing birt2. september 2025
Umsóknarfrestur14. september 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Skemmuvegur 2A, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Sölu- og markaðsstjóri
Knattspyrnufélagið Valur

Starfsmaður í netverslun S4S
S4S Netverslun - Skór.is - AIR.is - Ellingsen.is

Vilt þú helgarvinnu í umhverfi þar sem gæði og gleði fara saman?
Polarn O. Pyret

Aðstoðarmanneskja skrifstofustjóra
Norconsult Ísland ehf.

Sölufulltrúi Langtímaleigu
Hertz Bílaleiga

Sölusnillingur óskast í frábært teymi nýrra bíla- framtíðarstarf
Hekla

SKRIFSTOFUUMSJÓN
Fjármála- og fasteignafyrirtæki

Þjónustustjóri
Olíudreifing

Sölufulltrúi Icewear - Ísafjörður
ICEWEAR

AÐALBÓKARI
Flóahreppur

Þjónusta í apóteki - Bíldshöfði
Apótekarinn

Reykjavík - Sölufulltrúi, 25 ára og eldri
Papco