Bjargey
Bjargey

Hópstjóri á Bjargey, meðferðarheimili í Eyjafirði

Vilt þú taka þátt í krefjandi og gefandi starfi með unglingum? Barna- og fjölskyldustofa auglýsir lausa til umsóknar stöðu hópstjóra á Bjargey, meðferðarheimili fyrir unglinga. Um er að ræða 100% stöðu í vaktavinnu sem heyrir undir forstöðumann Bjargeyjar. Starfsstöð er að Laugalandsskóla í Eyjafjarðarsveit.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á vaktstjórn á meðferðarheimilinu utan hefðbundins dagvinnutíma eða í fjarveru yfirmanns. 
  • Meðferðarvinna, vinna að tómstundastarfi með skjólstæðingum og ábyrgð á að einstaklingsmiðuðu skipulagi sé fylgt.
  • Einstaklingsbundinn stuðningur við skjólstæðinga í meðferð, í samvinnu við stjórnendur og fagaðila.
  • Samskipti við foreldra og samstarfsaðila.
  • Vinna eftir verklagsreglum Bjargeyjar og stefnu stofnunarinnar.
  • Önnur tilfallandi verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla og/eða menntun sem að mati forstöðumanns nýtist í starfi.
  • Reynsla og þekking af meðferðarvinnu með unglingum.
  • Staðgóð þekking og/eða reynsla af notkun áhugahvetjandi samtals og ART er æskileg.
  • Þekking á áfallamiðaðri nálgun er kostur.
  • Góð íslensku og ensku kunnátta í mæltu og rituðu máli, önnur tungumálakunnátta er kostur.
  • Gild ökuréttindi.
  • Lögð er áhersla á persónulega eiginleika svo sem góða samskiptahæfni, frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum. Einnig sveigjanleika, þjónustulund, getu til að vinna í teymi sem og jákvætt viðhorf til skjólstæðinga.
Fríðindi í starfi
  • Samgöngustyrkur
  • Heilsustyrkur
Auglýsing birt29. október 2024
Umsóknarfrestur8. nóvember 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Laugaland 152511, 601 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar