
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Velferðasvið ber ábyrgð á áætlanagerð, samhæfingu og samþættingu verkefna á sviði velferðarþjónustu, eftirliti í samræmi við lög, reglur, samþykktir og pólitíska stefnu í velferðarmálum, mat á árangri og þróun velferðarþjónustu og nýrra úrræða og gerð þjónustusamninga um framkvæmd þjónustunnar. Velferðarsvið býr Reykjavíkurborg ennfremur undir að taka við nýjum velferðarverkefnum frá ríki svo sem í málefnum fatlaðra, öldrunarþjónustu og heilsugæslu.
Velferðarsvið ber ábyrgð á framkvæmd þjónustu á sviði velferðarmála, þar með talinni félagsþjónustu fyrir alla aldurshópa og barnavernd. Velferðarsvið ber ábyrgð á rekstri þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar og starfseininga sem undir þær heyra. Velferðarsvið vinnur með velferðarráði og barnaverndarnefnd og sinnir málefnum þeirra. Þjónustumiðstöðvar vinna með hverfaráðum í hverfum borgarinnar.
Velferðarsvið sér einnig um rekstur miðlægrar velferðarþjónustu þvert á borgina, átaksverkefna vegna endurhæfingar fólks, heildstæðu forvarnastarfi í Reykjavík, inntöku í húsnæðis- og búsetuúrræði, rekstur hjúkrunarheimila, rekstur framleiðslueldhúss og rekstur heimahjúkrunar í Reykjavík samkvæmt samningi við ríkið þar um.

Hlutastarf í íbúðakjarna í Grafarvogi
Starfsmaður óskast til starfa á heimili fyrir fatlaða einstaklinga. Hlutastarf sem hentar vel með skóla, kvöld og helgarvaktir.
Vættaborgir er íbúðakjarni þar sem sex fatlaðir einstaklingar búa og
þar er veitt sólarhringsþjónusta.
Unnið er samkvæmt hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar með
það að markmiði að efla sjálfstætt líf einstaklinga.
Menntunar- og hæfniskröfur
Reynsla í starfi með fötluðum einstaklingum
Góð hæfni í mannlegum samskiptum
Stundvísi og heiðarleiki í fyrirrúmi
Góð íslenskukunnátta B1
Æskilegt er að umsækjandi hafi náð 20 ára aldri.
Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
Helstu verkefni og ábyrgð
Einstaklingsmiðuð og sveigjanleg aðstoð við allar athafnir daglegs lífs
Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum
Hvetja og styðja til sjálfsstæðis og félagslegrar virkni
Taka þátt í þróunarstarfi sem tekur mið af ákvörðunarstuðningi við íbúa
Vera þátttakandi í teymisvinnu, þar sem þjónusta við íbúa er í fyrirrúmi
Auglýsing birt4. maí 2022
Umsóknarfrestur16. maí 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
HeiðarleikiStundvísi
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (8)

Starfsmaður ræstingu
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Ráðgjafi heim
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Iðjuþjálfi í endurhæfingarteymi
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Sjúkraliði Efri byggð
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Stuðningsfulltrúi óskast í Skammtímadvöl Árlandi 9
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Stuðningsfulltrúi óskast á íbúðakjarna í Grafarvogi
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Hjúkrunarfræðingur Droplaugarstaðir MND deild
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Umönnun Droplaugarstaðir
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Sambærileg störf (12)

Aðstoðarmanneskja óskast á Akureyri
NPA miðstöðin

Sjúkraliði á bráðaöldrunarlækningadeild Fossvogi
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á bráðaöldrunarlækningadeild Fossvogi
Landspítali

Óska eftir NPA aðstoðarfólki í hlutastarf
NPA miðstöðin

NPA aðstoðarkona í fullt starf!
Forréttindi

Fjölbreytt og skemmtilegt starf á Tannlæknastofu
Tannlæknastofa Grafarvogs

Virkniþjálfi - starfskraftur í dagþjálfun
Hlíðabær

Verkefnastjóri á Heimili fyrir börn
Velferðarsvið Mosfellsbæjar - Búsetukjarnar

Hjúkrunarfræðingur - Heimaspítali barna
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á vöknun í Fossvogi
Landspítali

Hlutastarf í Frístundaklúbbnum Úlfinum
Frístundaklúbburinn Úlfurinn

Óska eftir aðstoðarkonu í fjölbreytt starf
NPA miðstöðin