Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Hjúkrunarfræðingur - Upplýsingamiðstöð HH

Heilsugæsla höfuðborgasvæðisins (HH) leitar að reynslumiklum hjúkrunarfræðingi til þess að sinna starfi teymisstjóra við Upplýsingamiðstöð HH. Viðkomandi ber ábyrgð á skipulagningu hjúkrunarþjónustu í samráði við forstöðumann. Þetta er kjörið tækifæri fyrir skipulagðan og lausnamiðaðan einstakling sem vill takast á við ábyrgðamikið hlutverk í öflugu teymi. Mikil áhersla er lögð á samvinnu milli fagstétta innan starfsstöðva HH og að þjónustuþarfir skjólstæðinga séu ávallt í fyrirrúmi.

Ráðið verður í 70–100% starf á dagvinnutíma, tímabundið til eins árs, frá og með 1. nóvember nk. eða samkvæmt nánara samkomulagi.

Nánari upplýsingar má finna inni á www.island.is/starfatorg

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast daglegt skipulag og vaktstjórn á virkum dögum
  • Hefur umsjón með símtölum Héraðsvaktar
  • Umsjón með vaktsíma Upplýsingamiðstöðvar
  • Ber ábyrgð á daglegri skráningu í sjúkraskráningakerfi
  • Veitir faglega ráðgjöf í síma og á netspjalli til skjólstæðinga
  • Er ráðgjafandi fyrir þjónustufulltrúa
  • Ber ábyrgð á skipulagi dagvakta á Upplýsingamiðstöð
  • Ber ábyrgð á daglegum samskiptum við heilbrigðisstofnanir
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • A.m.k. 5 ára starfsreynsla sem hjúkrunarfræðingur
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Reynsla af starfi í heilsugæslu er kostur
  • Frumkvæði og sjálfstæði vinnubrögðum
  • Skipulagshæfileikar og hæfni til að hafa yfirsýn undir álagi
  • Lausnarmiðuð hugsun og viðbragð
  • Færni til að vinna í þverfaglegu teymi
  • Þekking og hæfni til að meta þarfir skjólstæðinga og finna viðeigandi úrlausnir
  • Þekkir vel heilbrigðiskerfið og úrræði þess
  • Mjög góð tölvukunnátta
  • Íslenskukunnátta skilyrði
  • Góð enskukunnátta
Fríðindi í starfi
  • Heilsustyrkur
  • Samgöngustyrkur
Auglýsing birt1. september 2026
Umsóknarfrestur15. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Þönglabakki 1, 109 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar