

Aðstoðarmanneskja á heyrnarsviði - Heyrnar og talmeinastöð HH
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins óskar eftir að ráða aðstoðarmanneskju til starfa á heyrnarsvið Heyrnar og talmeinastöðvar (HT). Um er að ræða 100% ótímabundið starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Aðstoðarmaður vinnur náið með heyrnarfræðingum við að þjónusta skjólstæðinga heyrnarsviðs, ásamt því að beina skjólstæðingum í rétta og tímanlega þjónustu. Viðkomandi hlýtur sérþjálfun til að vinna ákveðin störf undir stjórn og á ábyrgð heyrnarfræðinga og heyrnarráðgjafa HT. Starfinu fylgja fjölbreytt verkefni og tækifæri á að þróast í starfi.
Heyrnar og talmeinastöð HH er miðstöð þekkingar í heyrnar og talmeinum á Íslandi sem veitir þjónustu á landsvísu. Hlutverk HT er að þjóna þeim sem eru heyrnarskertir, heyrnarlausir eða með mál og talmein.
Við leitum af drífandi einstaklingi með mikla þjónustulund í móttöku- og þjónustuteymi HT, viðkomandi ber ábyrgð á að tryggja framúrskarandi þjónustu og skapa jákvæða upplifun viðskiptavina.
- Umsjón með pöntun og móttöku rekstrarvöru og tækja fyrir heyrnarsvið
- Undirbúningur heimsókna viðskiptavina
- Fræðsla og kynningarstarf til almennings
- Umsjón með fjarþjónustu
- Umsjón með þjónustu við öldrunarstofnanir og aðstoða við vinnu heyrnarfrærðinga
- Kynning hjálpartækja og aðstoð við notkun þeirra, pörun heyrnartækja við farsíma o.fl.
- Eftirfylgd og stuðningur í kjölfar þess að einstaklingur hefur fengið ný heyrnar- og / eða hjálpartæki
- Aðstoð og afleysing í móttöku
- Aðstoð við viðgerðarþjónustu, tæki send til birgja til viðgerða og umsjón með afhendingu að lokinni viðgerð.
- Nám sem nýtist í starfi, t.d. heilbrigðisvísindum
- Reynsla af Sögukerfi kostur
- Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
- Mjög góð skipulagshæfni, sjálfstæði og frumkvæði
- Mjög góð samskiptafærni og hæfni til samstarfs við ólíka fagaðila
- Góð almenn tölvukunnátta
- Góð íslenskukunnátta, bæði rituð og töluð
- Góð almenn enskukunnátta er æskileg
- Góð færni í a.m.k. einu norðurlandamáli æskilegt (Dan, Sæn, Nor).
- Heilsustyrkur
- Tækifæri til sí- og endurmenntunar
- Samgöngustyrkur
Íslenska


















