Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Málastjóri - Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana HH

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar eftir þroskaþjálfa eða iðjuþjálfa í starf málastjóra hjá Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana. Fjölmörg tækifæri eru innan teymisins til að efla faglega þekkingu og sérhæfingu, þar sem teymið er í stöðugri þróun. Um er að ræða 80- 100% tímabundið starf og ráðið er í starfið frá 1. október eða eftir nánara samkomulagið.

Geðheilsuteymis taugaþroskaraskana veitir 2. stigs heilbrigðisþjónustu á landsvísu fyrir einstaklinga sem eru 18 ára og eldri með þroskahömlun og klínískan geðrænan vanda og /eða krefjandi hegðun. Skjólstæðingar teymisins eru jafnframt oft með fjölbreyttan taugaþroska og aðra sjúkdóma, svo sem einhverfu. Lögð er áhersla á þverfaglega samvinnu innan teymisins og náið samstarf þvert á heilbrigðis- og velferðarþjónustu um land allt.

Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á að starfa í fjölbreytilegri samfélagsgeðþjónustu, þar sem teymisvinna, fagmennska og góður starfsandi eru í fyrirrúmi.

Um er að ræða spennandi starf í sérhæfðu teymi þar sem þverfagleg samvinna og fagleg þróun eru lykilþættir. Ef þú hefur áhuga á að sinna mikilvægu og áhrifaríku starfi með fjölbreyttum hópi skjólstæðinga, þá er þetta rétta tækifærið.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Málastjórn og meðferðarvinna
  • Gerð meðferðaáætlana, endurmat og eftirfylgd
  • Umsjón og heildarsýn yfir meðferð og úrræði notendahóps
  • Ráðgjöf og fræðsla til notenda og aðstandenda
  • Skipuleggur og veitir einstaklingsmiðaða ráðgjöf og fræðslu til þjónustuveitanda
  • Þátttakandi í þverfaglegu teymi
  • Þátttaka í að efla og innleiða nýjungar í starfi

Viðkomandi mun starfa í þverfaglegum teymum í náinni samvinnu við starfsfólk heilsugæslustöðva, félagsþjónustu á landsvísu, geðsviðs Landspítala, annarra stofnana og samtaka.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsleyfi frá Embætti landlæknis sem þroskaþjálfi eða iðjuþjálfi
  • Hagnýt starfsreynsla a.m.k. 3 ár
  • Skipulagshæfni, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót
  • Áreiðanleiki, faglegur metnaður, jákvæðni og sveigjanleiki
  • Þekking á skipulögðum vinnubrögðum (TEACCH)
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Íslenskukunnátta skilyrði
  • Hæfni og áhugi á teymis-og verkefnavinnu
Fríðindi í starfi
  • Heilsustyrkur
  • Tækifæri til sí- og endurmenntunar
Auglýsing birt25. ágúst 2026
Umsóknarfrestur31. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Vegmúli 3, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Skipulag
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar