

Heimilislæknir - Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana HH
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar eftir heimilislækni til starfa hjá Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana. Fjölmörg tækifæri eru innan teymisins til að efla faglega þekkingu og sérhæfingu, þar sem teymið er í stöðugri þróun. Um er að ræða 30% ótímabundið starf og ráðið er í starfið frá 1. október eða eftir nánara samkomulagið.
Geðheilsuteymis taugaþroskaraskana veitir 2. stigs heilbrigðisþjónustu á landsvísu fyrir einstaklinga sem eru 18 ára og eldri með þroskahömlun og klínískan geðrænan vanda og /eða krefjandi hegðun. Skjólstæðingar teymisins eru jafnframt oft með fjölbreyttan taugaþroska og aðra sjúkdóma, svo sem einhverfu. Lögð er áhersla á þverfaglega samvinnu innan teymisins og náið samstarf þvert á heilbrigðis- og velferðarþjónustu um land allt.
Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á að starfa í fjölbreytilegri samfélagsgeðþjónustu, þar sem teymisvinna, fagmennska og góður starfsandi eru í fyrirrúmi.
Um er að ræða spennandi starf í sérhæfðu teymi þar sem þverfagleg samvinna og fagleg þróun eru lykilþættir. Ef þú hefur áhuga á að sinna mikilvægu og áhrifaríku starfi með fjölbreyttum hópi skjólstæðinga, þá er þetta rétta tækifærið.
Starfssvið sérfræðings í heimilislækningum er víðtækt og felst m.a. heilbrigðisskoðun skjólstæðinga, ráðgjöf með tilliti til heilsufarsþátta og eftirfylgni. Heimilislæknir er virkur þátttakandi í þróun og uppbyggingu heimilislækninga, sinnir kennslu starfsfólks og nema og tekur þátt í vísinda-, þróunar- og gæðastarfi. Viðkomandi mun starfa í þverfaglegum teymum í náinni samvinnu við starfsfólk heilsugæslustöðva, félagsþjónustu, geðsviðs Landspítala, annarra stofnana og samtaka.
Um er að ræða spennandi vettvang fyrir lækni sem hefur áhuga á að taka þátt í nýsköpun og framþróun í heilsugæslu
-
Íslenskt lækningaleyfi
-
Sérfræðimenntun í heimilislækningum
-
Skipulagshæfni, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð
-
Reynsla af kennslu er æskileg
-
Góð hæfni í mannlegum samskiptum
-
Reynsla og áhugi til samstarfs við aðrar fagstéttir og þátttaka í teymisvinnu
-
Áreiðanleiki, faglegur metnaður, jákvæðni og sveigjanleiki
-
Góð almenn tölvukunnátta
-
Íslenskukunnátta skilyrði
- Samgöngustyrkur
- Heilsustyrkur
- Tækifæri til sí- og endurmenntunar
Íslenska


















