

Hjúkrunarfræðingur óskast á taugalækningadeild
Við sækjumst eftir metnaðarfullum hjúkrunarfræðingi til að starfa með okkur á taugalækningadeild í Fossvogi. Við bjóðum jafnt velkominn reynslubolta sem og nýútskrifaðan hjúkrunarfræðing í okkar góða hóp því við teljum gott að hafa breidd í þekkingu og reynslu. Í boði er einstakt tækifæri til að sérhæfa sig í hjúkrun sjúklinga með taugasjúkdóma. Unnið er í vaktavinnu og er ráðið í starfið frá 1. desember 2022 eða eftir nánara samkomulagi.
Taugalækningadeild þjónar sjúklingum með taugasjúkdóma og starfa þar um 60 manns í þverfaglegu teymi. Lögð er áhersla á góð samskipti við sjúklinga og fjölskyldur þeirra. Góður starfsandi er ríkjandi og ótalmörg tækifæri eru til að vaxa í starfi. Við vinnum markvisst að því að gera deildina okkar betri og fögnum nýjum hugmyndum.
Landspítali styður nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga í starfi með markvissri handleiðslu og fræðslu, samhliða starfi í .







































