Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS)
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS)
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS)

Hjúkrunarfræðingur i heimahjúkrun

Viltu slást í hópinn og taka þátt í spennandi uppbyggingu?

Framundan er mikil uppbygging á HSS og leitum við að metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingum til að slást í okkar frábæra hóp.

Um er að ræða 50% starf til eins árs í afleysingu vegna fæðingarorlofs í vaktavinnu. Á stofnuninni er góð samvinna milli deilda, boðleiðir eru stuttar og góður starfsandi. Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum góða og einstaklingshæfða aðlögun. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.

Menntunar- og hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Faglegur metnaður og reynsla af teymisvinnu
Framúrskarandi samskiptahæfni
Sjálfstæði í vinnubrögðum
Fjölbreytt reynsla í hjúkrun
Gilt ökuleyfi og hreint sakavottorð
Góð íslensku- og enskukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
Störf hjúkrunarfræðinga í heimahjúkrun eru bæði fjölbreytt og krefjandi. Heimahjúkrun veitir víðtæka hjúkrun í heimahúsum vegna langvinnra sjúkdóma og andlegrar og líkamlegrar skerðingar.
Unnið er á grundvelli þverfaglegs samstarfs sérfræðinga og áhersla lögð á heildarsýn og samþætta þjónustu.
Hjúkrunarfræðingar starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um heilbrigðisstarfsmenn, siðareglum og markmiðum hjúkrunar og deildarinnar. Leiðarljós HSS í þjónustu og starfi er umhyggja, fagmennska og virðing.
Auglýsing birt21. nóvember 2022
Umsóknarfrestur8. desember 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Skólavegur 6, 230 Reykjanesbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar