
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Velferðasvið ber ábyrgð á áætlanagerð, samhæfingu og samþættingu verkefna á sviði velferðarþjónustu, eftirliti í samræmi við lög, reglur, samþykktir og pólitíska stefnu í velferðarmálum, mat á árangri og þróun velferðarþjónustu og nýrra úrræða og gerð þjónustusamninga um framkvæmd þjónustunnar. Velferðarsvið býr Reykjavíkurborg ennfremur undir að taka við nýjum velferðarverkefnum frá ríki svo sem í málefnum fatlaðra, öldrunarþjónustu og heilsugæslu.
Velferðarsvið ber ábyrgð á framkvæmd þjónustu á sviði velferðarmála, þar með talinni félagsþjónustu fyrir alla aldurshópa og barnavernd. Velferðarsvið ber ábyrgð á rekstri þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar og starfseininga sem undir þær heyra. Velferðarsvið vinnur með velferðarráði og barnaverndarnefnd og sinnir málefnum þeirra. Þjónustumiðstöðvar vinna með hverfaráðum í hverfum borgarinnar.
Velferðarsvið sér einnig um rekstur miðlægrar velferðarþjónustu þvert á borgina, átaksverkefna vegna endurhæfingar fólks, heildstæðu forvarnastarfi í Reykjavík, inntöku í húsnæðis- og búsetuúrræði, rekstur hjúkrunarheimila, rekstur framleiðslueldhúss og rekstur heimahjúkrunar í Reykjavík samkvæmt samningi við ríkið þar um.

Hjúkrunarfræðingur á MND deild Droplaugarstaða
Óskað er eftir metnaðarfullum hjúkrunarfræðingi til starfa á MND deild Droplaugarstaða. Deildin er einstök með einungis fjögur MND rými. Íbúar geta haft þörf fyrir sérhæfða hjúkrun og eru allir starfsmenn sérþjálfaðir í umönnun MND sjúklinga. Boðið er upp á sérhæfða þjálfun og aðlögun. Starfshlutfall og vinnufyrirkomulag er samkomulag.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipuleggur og metur hjúkrunarþörf íbúa.
- Sinnir og ber ábyrgð á almennum hjúkrunarverkefnum skv. hjúkrunaráætlun íbúa
- Vinnum samkvæmt markmiðum, hugmyndafræði og gæðastefnu heimilisins
- Vinnur samkvæmt gæðakerfi Droplaugarstaða
Menntunar- og hæfniskröfur
- Hjúkrunarfræðingur með íslenskt hjúkrunarleyfi
- Íslenskukunnátta á stig C1 í samræmi við samevrópskan tungumálaramma
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði í starfi, þolinmæði og jákvætt viðhorf
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Fríðindi í starfi
- Reykjavíkurkort skv. reglum Reykjavíkurborgar
- 36 klst. vinnuvika
- Samgöngusamningur skv. reglum Reykjavíkurborgar
- Íþróttastyrkur skv. reglum Reykjavíkurborgar
Auglýsing birt2. september 2026
Umsóknarfrestur13. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Snorrabraut 58, 105 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Hjúkrunardeildarstjóri göngudeildar innkirtla- og gigtarsjúkdóma
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur hjá Kjarki endurhæfingu – Erum við að leita af þér?
Kjarkur endurhæfing

Hjúkrunarfræðingar á taugalækningadeild
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á L5 Landakoti
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur - Upplýsingamiðstöð HH
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Viðskiptastjóri á Lyfjasviði (Pfizer)
Icepharma

Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa hjá Heilsuvernd
Heilsuvernd

Sérfræðinám í hjúkrun og ljósmóðurfræði
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á taugaendurhæfingardeild Landakoti
Landspítali

Skaðaminnkandi verkefni Rauða krossins - 50-70% starf í Ylju
Rauði krossinn á höfuðborgarsvæðinu

Aðstoðarhjúkrunardeildarstjóri - Sléttuvegur
Hrafnista

Hjúkrunarfræðingur á legudeild geðrofssjúkdóma
Landspítali