Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Hjúkrunarfræðingur á Droplaugarstöðum

Droplaugarstaðir er hjúkrunarheimili með áherslu á heimilislegt umhverfi og sjálfsákvörðunarrétt íbúa.
Droplaugarstaðir eru með virkt gæðakerfi og fengu ISO vottun árið 2020 fyrst hjúkrunarheimila á Íslandi. Í stefnu heimilisins eru öryggi, virkni og vellíðan íbúa, starfsfólks og fjölskyldna í öndvegi.
Við leggjum áherslu á metnað í starfi, fagleg vinnubrögð og samvinnu íbúa og starfsfólks.
Íbúar eru 81 á 4 deildum, allir búa í sérbýli með baðherbergi.
Við erum staðsett í hjarta Reykjavíkur og stutt í almenningssamgöngur.
Við óskum eftir að ráða hjúkrunarfræðing til starfa.
Við bjóðum upp á:
* Gæðavottað starfsumhverfi
* Krefjandi og spennandi verkefni
* Skemmtilegan og faglegan starfsmannahóp
* Heimilislegt vinnuumhverfi
* Sveigjanlegan vinnutíma - starfshlutfall og fyrirkomulag samkomulagsatriði

Menntunar- og hæfniskröfur
Hjúkrunarfræðingur með íslenskt hjúkrunarleyfi
Góð íslenskukunnátta
Góð hæfni í mannlegum samskiptum
Frumkvæði í starfi, þolinmæði og jákvætt viðhorf
Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar
Helstu verkefni og ábyrgð
Skipuleggur og metur hjúkrunarþörf íbúa.
Vinnum samkvæmt markmiðum, hugmyndafræði og gæðastefnu heimilisins.
Sinnir og ber ábyrgð á almennum hjúkrunarverkefnum skv. hjúkrunaráætlun íbúa.
Vinnur samkvæmt gæðakerfi Droplaugarstaða.
Auglýsing birt10. febrúar 2021
Umsóknarfrestur28. febrúar 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Snorrabraut 58, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar