

Hjúkrunarfræðingar á heilsugæslu
Viltu taka þátt í uppbyggingu stofnunarinnar?
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) veitir íbúum Suðurnesja fyrsta- og annars stigs heilbrigðisþjónustu. Á HSS eru þrjú svið; heilsugæslusvið, sjúkrasvið og hjúkrunarsvið. Framundan er víðtæk uppbygging á stofnuninni, endurskoðun á þjónustuferlum sem og stefnu stofnunarinnar byggðri á Heilbrigðisstefnu til ársins 2030.
Óskum eftir að ráða hjúkrunarfræðinga til starfa og vera í hópi fagaðila og styrkja öfluga teymisvinnu sem bætir þjónustu við skjólstæðinga heilsugæslunnar. Um er að ræða 80-100% starf í dagvinnu tímabundið vegna fæðingarorlofs.
Leitað er eftir áhugasömum einstaklingum með frumkvæði, faglegan metnað og jákvætt hugarfar til að taka þátt í uppbyggingu stofnunarinnar. Á HSS er lögð áhersla á góða samvinnu, stuttar boðleiðir og góðan starfsanda.
Unnið er á grundvelli þverfaglegs samstarfs sérfræðinga og áhersla lögð á teymisvinnu og samþætta þjónustu. Hjúkrunarfræðingar starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um heilbrigðisstarfsmenn, siðareglum og markmiðum hjúkrunar og deildarinnar.
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Faglegur metnaður
- Framúrskarandi samskiptahæfni
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvætt og hlýtt viðmót
- Gott vald á íslensku bæði í ræðu og riti.
- Starfsreynsla er kostur
Íslenska
Enska










