Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS)
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS)
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS)

Næringarfræðingur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja

Viltu taka þátt í uppbyggingu stofnunarinnar?

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) veitir íbúum Suðurnesja fyrsta- og annars stigs heilbrigðisþjónustu. Á HSS eru þrjú svið; heilsugæslusvið, sjúkrasvið og hjúkrunarsvið. Framundan er víðtæk uppbygging á stofnuninni, endurskoðun á þjónustuferlum sem og stefnu stofnunarinnar byggðri á Heilbrigðisstefnu til ársins 2030.

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða næringarfræðing til starfa ótímabundið í 50 % starf á stofnunina. Um er að ræða dagvinnu og er starfið laust frá 1. apríl eða samkvæmt samkomulagi.

Hér er um að ræða tækifæri fyrir framsækinn og metnaðarfullan næringarfræðing sem hefur áhuga að vinna að umbótum og framþróun í þverfaglegum teymum til að efla þjónustu við skjólstæðinga.

Starfsemi heilsugæslunnar í Reykjanesbæ er fjölbreytt, hjúkrunarmóttaka, skólahjúkrun, mæðravernd, ung- og smábarnavernd og heilsueflandi móttaka.

Á HSS er lögð áhersla á góða samvinnu, stuttar boðleiðir og góðan starfsanda.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Næringarfræðingur hefur umsjón með næringarmeðferð og ráðgjöf til skjólstæðinga stofnunarinnar
  • Hann er þátttakandi í þverfaglegri teymisvinnu, meðal annars í sykursýkismóttöku og öðrum heilsueflandi móttökum
  • Sinnir fræðslu og hefur umsjón með fræðsluefni
  • Næringarfræðingar starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um heilbrigðisstarfsmenn og siðareglum og markmiðum stofnunarinnar
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Löggilding samkvæmt reglugerð sem og gilt starfsleyfi
  • Faglegur metnaður
  • Góð samskiptahæfni
  • Sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum
  • Hlýtt og jákvætt viðmót
  • Klínísk reynsla æskileg
Auglýsing birt6. janúar 2026
Umsóknarfrestur26. janúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Skólavegur 6, 230 Reykjanesbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar