Heilsuhúsið
Heilsuhúsið

Heilsuhúsið Kringlunni - þjónusta og ráðgjöf

Heilsuhúsið í Kringlunni leitar að jákvæðum og drífandi einstaklingi í þjónustu- og afgreiðslustarf. Um er að ræða framtíðarstarf í hlýlegu og uppbyggilegu umhverfi þar sem aðaláherslan er á faglega þjónustu og ráðgjöf um heilbrigðan lífsstíl.

Hlutverk og ábyrgð:

  • Fagleg þjónusta við viðskiptavini
  • Ráðgjöf um val á heilsuvörum
  • Afgreiðsla og móttaka vara
  • Áfyllingar og uppsetning vara í verslun
  • Umhirða og þrif í verslun

Hvaða hæfni þarft þú að hafa?

  • Góða samskiptahæfni og ríka þjónustulund
  • Áhuga á heilbrigðum lífsstíl
  • Góða íslensku- og enskukunnáttu
  • Reynslu af verslunarstörfum (kostur)
  • Þekkingu og/eða reynslu af heilsuvörum (kostur)

Starfið:

Um er að ræða u.þ.b. 80% starfshlutfall og er vinnutími alla virka daga frá 12:00-18:30 og bakvakt aðra hvora helgi.

Umsækjandi þarf að hafa náð 20 ára aldri og geta hafið störf sem fyrst.

Nánari upplýsingar veitir Lára Pétursdóttir, umsjónarmaður verslunar, [email protected] |
S: 568-9266

Farið er með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.

Auglýsing birt15. október 2025
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Kringlan 8-12, 103 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar