Arion banki
Arion banki
Arion banki

Hefur þú áhuga á vöruþróun, umbótum og verkefnastýringu?

Við leitum að metnaðarfullum og drífandi einstaklingi í deildina þróun og rekstur á Mörkuðum hjá Arion banka. Markaðir veita margvíslega þjónustu tengt eignastýringu, rekstri lífeyrissjóða, markaðsviðskiptum, ásamt Premía þjónustu. Arion banki, ásamt dótturfélögum eru leiðandi í eignastýringu á Íslandi með tæplega 2.000 milljarða króna í eignastýringu og þjónustu.

Þróun og rekstur vinnur þvert á Markaði og ber ábyrgð á þróun, verkefnastýringu, tækni, gæða- og rekstrarmálum sviðsins. Við leitum að einstaklingi í verkefni tengt vöruþróun, umbótum og verkefnastýringu. Starfið felur í sér mikil samskipti við hagsmunaaðila og starfsfólk.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þróun og umbætur á vörum og þjónustum sviðsins
  • Þróun þjónustu til viðskiptavina
  • Þróun stafrænna lausna
  • Verkefni tengd skilvirkni
  • Verkefnastýring þróunar-, umbóta- og lagabreytingaverkefna
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð tæknileg færni og áhugi á tækninýjungum
  • Þekking á verkefnastýringu
  • Góð færni í mannlegum samskiptum og áhugi á teymisvinnu
  • Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagsfærni
  • Þekking á lífeyris- og verðbréfavörum er kostur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • A.m.k. 5 ára starfsreynsla sem nýtist í starfi
Auglýsing birt11. mars 2026
Umsóknarfrestur22. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 19, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar