

Viðskiptastjóri orku og grænna lausna
Íslandsstofa leitar að öflugum viðskiptastjóra til starfa í teymi orku og grænna lausna og fjárfestinga. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni sem styðja við alþjóðlega sókn íslenskra útflutningsfyrirtækja í orku og grænum lausnum
Stýra og fylgja eftir verkefnum sem tengjast markaðssókn fyrirtækja í orku og grænum lausnum, á erlendum mörkuðum.
Undirbúa og samræma þátttöku í verkefnum, ráðstefnum, viðburðum og sendinefndum innanlands og erlendis.
Vinna að markaðs- og kynningarefni í samstarfi við fagstjóra, fyrirtæki og stoðsvið Íslandsstofu.
Halda utan um verkefnaáætlanir, framvindu, eftirfylgni og skýrslugerð.
Vera tengiliður við fyrirtæki, samstarfsaðila og aðra hagaðila eftir þörfum.
Styðja við þróun nýrra verkefna og greiningu tækifæra á alþjóðlegum mörkuðum.
Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
Reynsla af verkefnastjórnun, viðskiptaþróun, alþjóðlegu samstarfi eða markaðsverkefnum er kostur.
Góð skipulags- og samskiptahæfni og geta til að vinna sjálfstætt sem og í teymi.
Hæfni til að miðla upplýsingum á skýran og faglegan hátt, bæði í ræðu og riti.
Gott vald á íslensku og ensku.
Áhugi á orku, sjálfbærni og grænum lausnum er æskilegur.
Íslenska
Enska










