
Byko
BYKO rekur eina stærstu byggingavöruverslun landsins í Breiddinni í Kópavogi, auk verslana á höfuðborgarsvæðinu og víða um land.
Saga BYKO hófst árið 1962 þegar Guðmundur H. Jónsson og Hjalti Bjarnason opnuðu fyrstu BYKO verslunina við Kársnesbraut í Kópavogi. Frá upphafi kappkostuðu félagarnir að veita viðskiptavinum sínum, fagmönnum jafnt sem almennum húsbyggjendum, framúrskarandi þjónustu. Þessi gildi frumkvöðlanna lögðu grunninn að uppbyggingu fyrirtækisins sem nú er leiðandi í sölu á byggingavörum hér á landi.
BYKO er fjölskyldufyrirtæki og skilar það sér í menningu félagsins. Hjá BYKO starfar fjölbreyttur hópur fólks af fagmennsku, framsækni og með gleðina í fyrirrúmi. Markmið okkar er ávallt að veita viðskiptavinum okkar og starfsfólki bestu heildarupplifunina af BYKO.
Við hjá BYKO trúum við því að starfsfólkið okkar sé okkar mikilvægasta auðlind til að ná árangri. Því hefur félagið sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun starfsfólks af BYKO sem vinnustað. Lykillinn að því að fá gott starfsfólk til starfa er að hafa gott orðsport, sterka ímynd og vinnustað sem starfsfólk mælir með. Framtíðarsýn okkar vinnur að því markmiði.
Við erum stolt af því að vera vottuð sem frábært vinnustaður af Great Place to Work. Við leggjum áherslu á að stuðla að trausti, vellíðan og helgun meðal okkar starfsfólks og er vinnustaðagreining Great Place to Work okkar verkfæri í þeirri vegferð.
Við leggjum áherslu á að mæta starfsfólki okkar þar sem það er á hverjum tíma. Fríðindi starfsfólks stuðla að heilbrigðari vinnustaðamenningu þar sem er sveigjanleiki og góð samþætting á vinnu og einkalífi.
BYKO hefur fengið vottun á jafnlaunakerfi sitt og hefur með því skuldbundið sig til að greiða starfsfólki sem sinna sömu eða sambærilegum störfum sambærileg kjör. Félagið undir gengur árlega úttekt af utanaðkomandi óháðum aðila til að viðhalda vottun félagsins.
Við bjóðum starfsfólki okkar upp á:
• Fjárhagslegan styrk í allt að þrjá mánuði í fæðingar- og
foreldraorlofi
• Samgöngustyrk
• Velferðarstyrk
• Aðgang að velferðarþjónustu Heilsuverndar
• Líkamsræktartyrk
• Frí rafbílahleðsla á flestum starfsstöðvum
• Sturtuaðstöðu á starfsstöðvum
• Sveigjanlegt og fjölskylduvænt starfsumhverfi
• Niðurgreiðsla á hádegismat
• Afsláttur á vörum í verslun
• Árshátíð og haustfögnuð
• Jólagjöf og páskagjöf
• Gjafir vegan starfsaldurs
• Fjarvinnu hluta úr viku fyrir störf þar sem það er möguleiki
Stjórnendur og starfsfólk BYKO leggja mikla áherslu á að styrkja starfsemina og bæta þjónustuna við viðskiptavini sína.
Á síðari árum hefur BYKO haslað sér völl erlendis, meðal annars með uppbyggingu á öflugu timburfyrirtæki í Lettlandi. Þar er unnið timbur og timburafurðir auk þess framleiðir verksmiðjan glugga og hurðir úr timbri, svo og álklædda timburglugga.

Verkefnastjóri stefnu
BYKO leitar að verkefnastjóra til þess að vinna með okkur að framtíðarsýn félagsins um að skapa bestu heildarupplifun starfsfólks, viðskiptavina og samfélagsins af BYKO.
Ef þú ert framsækinn, sinnir hlutum af fagmennsku og hefur gleðina í fyrirrúm, þá erum við að leita af þér.
Við leitum að einstaklingi með:
- Reynslu af verkefnastjórnun
- Reynslu af árangursríkri innleiðingu á stærri verkefnum
- Ríka þjónustulund og mjög góða samskiptahæfni
- Mikla skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góða tölvukunnáttu og mikla greiningarhæfni
- Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Verkefnastjórn á stefnumarkandi verkefnum innan BYKO sem ákveðin eru hverju sinni í samráði við framkvæmdastjórn
- Samræming og eftirfylgni verkefna, mælinga og ferla í tengslum við mótun og framkvæmd stefnumarkandi verkefna
- Samskipti og stuðningur við stjórnendur og starfsfólk við innleiðingu stefnu
- Vinna markvisst af því að bæta upplifun starfsfólks, viðskiptavina og samfélagsins af BYKO
Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.
BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavinar í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði
Nánari upplýsingar veitir Sveinborg Hafliðadóttir, mannauðs- og stefnustjóri ([email protected])
Auglýsing birt3. mars 2026
Umsóknarfrestur15. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Skemmuvegur 2A, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Skrifstofu- og verkefnastjóri
Lagnaviðgerðir

Verkefnastjóri fasteigna og bifreiða hjá Húsasmiðjunni
Húsasmiðjan

Verkefnastjóri véla og tækja
Þjónustustöð Mosfellsbæjar

Verkefnastjóri á dreifingarsviði í sumarafleysingar
Olíudreifing - Dreifing

Verkefnastjóri gæðamála
Orkubú Vestfjarða ohf

Verkefnastjóri fjárfestinga
Veitur

Deildarstjóri verkefnastjórnunar
Umhverfis- og skipulagssvið

Rekstrarstjóri þjónustu
Sýn

Verkefnastjóri
ÍAV

Training Manager
The Reykjavik EDITION

FORSTÖÐUMAÐUR
Skóla- og velferðarþjónusta Árnesþings bs

Verkefnastjóri stefnu
Isavia / Keflavíkurflugvöllur