
Þjónustustöð Mosfellsbæjar
Þjónustustöð Mosfellsbæjar sér um alla almenna þjónustu við bæjarbúa á sviði tækni- og umhverfismála, svo sem snjóruðning, viðhald og rekstur gatna, holræsa, veitna, umferðarmannvirkja og opinna svæða. Þjónustustöð sér einnig um viðhald á fasteignum bæjarins auk rekstur stærri tækja og bíla.
Undir starfsemi Mosfellsveitna heyra þau verkefni sem snúa að málefnum vatnsveitu, fráveitu og hitaveitu innan Mosfellsbæjar. Verkefnin eru eins fjölbreytt og þau eru mörg og snúa meðal annars að nýlögnum heimæða hita- og vatnsveitu ásamt almennu eftirliti, viðhaldi og endurnýjun veitumannvirkja.

Verkefnastjóri véla og tækja
Þjónustustöð Mosfellsbæjar óskar eftir að ráða þjónustulipran verkefnastjóra sem hugsar í lausnum til að sinna fjölbreyttum verkefnum með góðum hópi starfsfólks.
Verkefnastjóri véla og tækja ber ábyrgð á ökutækjum og vélum Þjónustustöðvar og eftirliti með færð og ástandi vega og stíga.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hefur eftirlit og umsjón með ökutækjum og vélum ásamt umsjón með löggiltum skoðunum þeirra.
- Sér um viðhald og viðgerðir á ökutækjum og vélum
- Sinnir eftirliti með færð og ástandi vega skv. áætlun og tekur bak- og útkallsvaktir
- Sinnir snjómokstri og hálkuvörnum stíga
- Sinnir öðrum verkefnum Þjónustustöðvar eins og þarf
Menntunar- og hæfniskröfur
- Vélamaður skal hafa iðnmenntun innan vélvirkjunar, bifvélavirkjunar eða öðru sem nýtist við viðgerðir á vélum og ökutækjum
- Meirapróf og vinnuvélaréttindi
- Farsæl reynsla af sambærilegu starfi
- Góðir samskiptahæfileikar og skipulagshæfni
- Frumkvæði og jákvætt viðhorf
- Nákvæmni og samviskusemi
- Góð almenn tölvukunnátta og þekking á forritum
- Góð hæfni til að tjá sig í rituðu og töluðu máli, bæði á íslensku og ensku
- Hreint sakavottorð
Auglýsing birt3. mars 2026
Umsóknarfrestur17. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Völuteigur 15, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
Hreint sakavottorðJákvæðniSamviskusemiSkipulagTeymisvinnaVélvirkjunÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Verslunarstarf
Barki EHF

Verkefnastjóri á dreifingarsviði í sumarafleysingar
Olíudreifing - Dreifing

Bifvélavirkjar - Askja Reykjanesbæ
Bílaumboðið Askja

Verkefnastjóri gæðamála
Orkubú Vestfjarða ohf

Verkefnastjóri fjárfestinga
Veitur

Þjónusta, bilanagreiningar og viðgerðir á lyftum Schindler
Schindler

Sumarstarf á verkstæði á Akureyri
Þór hf

Starfsmaður á verkstæði - Workshop Technician
Landfari ehf.

BIFVÉLAVIRKI ÓSKAST
Bus4u Iceland

Viðgerðarmaður á Selfossi
Steypustöðin

Uppsetninga - og þjónustusérfræðingur hurða
Héðinshurðir ehf

Fóðurbílstjóri - Sumarstarf
Bústólpi ehf