

Verkefnastjóri á dreifingarsviði í sumarafleysingar
Olíudreifing ehf. leitar að skipulögðum verkefnastjóra í sumarafleysingar í dreifingardeild á skrifstofu fyrirtækisins í Reykjavík.
Um er að ræða spennandi starf við verkefnastýringu og sér viðkomandi um skipulagningu á dreifingu á fljótandi eldsneyti.
Helstu verkefni:
- Dagleg verkefnastýring á dreifingu eldsneytis og vinnu bílstjóra
- Móttaka á eldsneytispöntunum og þjónustubeiðnum
- Eftirfylgni með viðhaldi á olíubílum
- Samskipti við viðskiptavini
Hæfniskröfur:
- Rík öryggisvitund, þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
- Þekking og reynsla af sambærilegum verkefnum er kostur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Þekking og reynsla af akstri stórra bíla er kostur
- Góð almenn tölvuþekking
- Geta til að eiga samskipti á ensku við bílstjóra varðandi verkefni dagsins
Við bjóðum þér:
- Spennandi verkefni og tækifæri til að læra
- Niðurgreiddan hádegismat
- Öflugt starfsmannafélag
Við hlökkum til að fá umsóknina þína
Umsóknarfrestur er til og með 12. mars 2026. Nánari upplýsingar veitir Helgi Marcher Egonsson, dreifingarstjóri ([email protected]).
Við hvetjum öll kyn til að sækja um.
Um Olíudreifingu:
Olíudreifing er þekkingar- og þjónustufyrirtæki á sviði orkumála. Hlutverk Olíudreifingar er að dreifa og halda utan um birgðir á fljótandi orkugjöfum. Félagið er nú þegar þátttakandi í orkuskiptum og er að undirbúa meðhöndlun rafeldsneytis.
Fyrirtækið rekur bifreiða-, járnsmíða-, dælu- og rafmagnsverkstæði. Einnig er rekið þjónustuverkstæði sem sinnir viðhaldi á raf- og vélbúnaði. Starfsfólk félagsins er um 130 talsins og starfar á starfsstöðvum víðsvegar um landið. Unnið er samkvæmt gæðavottuðum vinnuferlum.
Nánari upplýsingar um Olíudreifingu ehf. má finna á www.odr.is.
Enska










