
Skóla- og velferðarþjónusta Árnesþings bs
Skóla- og velferðarþjónusta Árnesþings (SVÁ) er fagleg og samþætt þjónusta með velferð íbúa að leiðarljósi. Meginstarfsstöð þjónustunnar er staðsett í Laugarási en starfssvæðið er víðfeðmt og fara starfsmenn á milli starfsstöðva á þjónustusvæðinu í samræmi við verkefni hverju sinni.
Sveitarfélögin sem standa að byggðasamlaginu eru Bláskógabyggð, Flóahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur og Skeiða- og Gnúpverjahreppur.

FORSTÖÐUMAÐUR
Skóla- og velferðarþjónusta Árnesþings bs. leitar að öflugum og skipulögðum aðila í starf forstöðumanns.
Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem lögð er áhersla á faglega stjórnun, góða yfirsýn og hæfni til að innleiða og stýra verkefnum.
Ásamt forstöðumanni eru starfandi tveir deildarstjórar á sviði velferðarþjónustu og skólaþjónustu.
Ráðningin er tímabundin til eins árs með möguleika á framhaldi sem skoðað verður að þeim tíma liðnum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stefnumótun og eftirfylgni með markmiðum byggðasamlagsins
- Almenn verkefnastýring og innleiðing nýrra verkferla
- Daglegur rekstur, stjórnun og starfsmannamál
- Þátttaka í stjórnarfundum og undirbúningur þeirra
- Yfirumsjón með innleiðingu og vinnulagi í farsæld barna
- Skipulag og utanumhald heimaþjónustu
- Samskipti við Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSu), m.a. vegna þjónustu og dagdvalar
- Ýmis önnur verkefni í samráði við stjórn og aðra hagaðila
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af stjórnun, verkefnastýringu og mannauðsmálum
- Þekking á stjórnsýslu sveitarfélaga kostur
- Leiðtogahæfni og geta til að innleiða breytingar
- Góð skipulagsfærni og yfirsýn
- Rík færni í samskiptum og samstarfi
- Sjálfstæði í vinnubrögðum og frumkvæði
Auglýsing birt20. febrúar 2026
Umsóknarfrestur6. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Laugarás 167384, 801 Selfoss
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Verkefnastjóri viðburða og Hlégarðs
Mosfellsbær

Verkefnastjóri
Farskólinn

Lögfræðingur
Hugverkastofan

Sérfræðingur á hugverkasviði
Hugverkastofan

Sviðsstjóri þjónustusviðs
BRÚ Lífeyrissjóður

Verkefnastjóri stjórnunarkerfa og gæðamála
Landsnet hf.

Verkefnastjóri NASF á Íslandi
NASF á Íslandi

Umhverfis- og framkvæmdasvið - Verkefnastjóri viðhalds og nýframkvæmda
Reykjanesbær

Verkefnastjóri skipulagsmála á umhverfis- og framkvæmdasviði
Reykjanesbær

Verkefnastjóri skráninga
Lyfjastofnun

Íshokkísamband Íslands leitar að starfsmanni í 40% tímabundið starf
Íshokkísamband Íslands

Verkefnastjóri á meðferðarheimilinu Esju
Barna- og fjölskyldustofa