

Skrifstofu- og verkefnastjóri
Avalsson ehf
Avalsson ehf er vaxandi þjónustu- og verktakafyrirtæki með um 17 starfsmenn sem starfar við sérhæfðar lagna- og þjónustuframkvæmdir um allt land.
Félagið rekur og þjónustar meðal annars eftirfarandi starfsemi og vörumerki:
-
Lagnaviðgerðir – www.lagnavidgerdir.is
-
Stíflutækni – www.stiflur.is
-
Meindýraþjónustan – www.mdt.is
Vegna aukinna umsvifa leitum við að öflugum og skipulögðum einstaklingi í lykilhlutverk á skrifstofu fyrirtækisins.
Um er að ræða mjög fjölbreytt starf þar sem er þörf á einstakling sem getur unnið einn og í hóp.
Við bjóðum
-
Fjölbreytt og ábyrgðarmikið starf
-
Starf í vaxandi fyrirtæki með stuttar boðleiðir
-
Tækifæri til að móta starf og verkferla
-
Gott og samheldið vinnuumhverfi
Umsóknir og fyrirspurnir sendist á: [email protected]
Helstu verkefni
- Móttaka verkefnabeiðna frá viðskiptavinum
- Skráning verkefna í bókunar- og verkstýringarkerfi
- Skipulagning og bókun verkefna fyrir starfsmenn
- Samskipti við viðskiptavini, verktaka og starfsmenn
- Undirbúningur og útgáfa reikninga
- Eftirfylgni verkefna og vinnuskýrslna
Önnur verkefni
-
Aðstoð við mannauðs- og starfsmannamál
-
Umsjón með skjölum, samningum og skráningum
-
Almenn skrifstofustjórnun
-
Stuðningur við stjórnendur í daglegum rekstri
-
Þátttaka í þróun verkferla og skipulags fyrirtækisins
Hæfniskröfur
✔ Góð skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
✔ Reynsla af skrifstofu-, þjónustu- eða verkefnastjórnun
✔ Góð tölvukunnátta og kerfislæsi
✔ Framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund
✔ Góð íslenskukunnátta og almenn enskukunnátta
Enska
Íslenska










