Umhverfis- og skipulagssvið
Umhverfis- og skipulagssvið
Umhverfis- og skipulagssvið

Verkefnastjóri stærri uppbyggingarverkefna

Skrifstofa eignastýringar leitar að verkefnastjóra til að leiða umfangsmikil verkefni með snertifleti við skipulag, hönnun og framkvæmdir. Um nýtt starf er að ræða, næsti yfirmaður er deildarstjóri stærri uppbyggingarverkefna en deildin heldur utan flókin borgarmótunarverkefni bæði stór uppbygginga-og samgönguverkefni. Verkefnastjóri gangsetur skilgreind verkefni innan verkefnastofna, hefur yfirsýn með framvindu þeirra, skilgreinir umfang og gerir viðeigandi áætlanir. Mikilvægur hluti starfsins er að leiða teymisvinnu, innan innan umhverfis- og skipulagssviðs, þvert á fagsvið borgarinnar og eftir atvikum með ytri hagaðilum. Verkefnastjóri, í samvinnu við fagteymi verkefna, ber ábyrgð á að líftími og vegferð s.s. meðferð gagna og upplýsingagjöf séu í samræmi við sett markmið og áætlanir hverju sinni.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stýrir verkefnum og verkefnastofnum sem ganga þvert á umhverfis- og skipulagssvið.
  • Leiðir teymisvinnu stærri verkefna, ábyrgð á undirbúningi og framkvæmd áætlana í tengslum við verkefnin.
  • Heldur utan um og uppfærir verkefnaskrá deildarinnar.
  • Þróar og innleiðir viðeigandi aðferðir og tæki verkefnastjórnunar.
  • Stjórnun á aðkeyptri vinnu ráðgjafa, umsjón með samningagerð og útboði.
  • Virk upplýsingagjöf, bein samskipti og samráð við íbúa, ráðgjafa, verktaka og aðra hagaðila.
  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu, í einhverjum tilvikum að leiða slíka vinnu.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi ásamt framhaldsmenntun í verkefnastjórnun eða önnur framhaldsmenntun sem nýtist í starfi.
  • Víðtæk þekking á á faglegri verkefnastjórnun og reynsla af notkun helstu verkefnastjórnunartækja.
  • Reynsla af skipulags, hönnunar og/eða framkvæmdaverkefnum æskileg
  • Framúrskarandi samskipta og samstarfshæfni, drifkraftur, frumkvæði og metnaður.
  • Færni til þess að stýra og vinna í hópum, útdeila verkefnum og fylgja þeim eftir.
  • Sjálfstæð og öguð vinnubrögð, framsýni og lausnarmiðuð hugsun.
  • Hæfni til framsetningar og greiningar á flóknum gögnum og miðlun upplýsinga í ræðu og riti.
  • Þekking og/eða reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
  • Íslenskukunnátta C1-C2 skv. evrópskum tungumálaramma og enskukunnátta B2-C1
Auglýsing birt6. mars 2026
Umsóknarfrestur11. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Hönnun ferlaPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar