
Viðburða- og verkefnastjóri knattspyrnudeildar Hauka
Knattspyrnudeild Hauka auglýsir eftir viðburða- og verkefnastjóra
Knattspyrnudeild Hauka auglýsir eftir verkefna- og viðburðastjóra á skrifstofu deildarinnar sem er nýtt starf í þeirri miklu og jákvæðu uppbyggingu sem á sér stað á Ásvöllum. Barna- og unglingastarfið er í miklum vexti ásamt báðum meistaraflokkum sem og vennslafélögum.
Starfið spannar allt frá almennri þjónustu í daglegum rekstri, viðburðatengd verkefni, undirbúningur í tengslum við heimaleiki og verkefnum tengd tekjuöflun deildarinnar ásamt ýmsum öðrum tilfallandi verkefnum á líflegum og skemmtilegum vinnustað.
Gagnvart hæfniskröfum þá er reynsla af slíkum störfum eða sambærilegum verkefnum æskileg. Lögð er áhersla á góða samskiptahæfni og gott skipulag með sjálfstæðum og öguðum vinnubrögðum. Þá gildir að vilji og jákvæður hugur sé ávallt til staðar og í algjöru fyrirrúmi. Sveigjanleiki er nauðsynlegur enda er um að ræða lifandi og mjög fjölbreytt starf þar sem enginn dagur er eins, en ávallt sótt til sigurs!
Íslenska










