
Arion banki
Starfsfólk Arion banka er kjarninn í starfsemi bankans og kappkostar bankinn að búa vel að starfsfólki sínu.
Arion banki er lifandi vinnustaður þar sem starfsumhverfið einkennist af fagmennsku, framsækni, umhyggju og tryggð
Hjá Arion banka starfa um 900 manns, þar af eru 65% konur og 35% karlar. Kynjaskipting á meðal stjórnenda bankans er fremur jöfn og sama gildir um aldursdreifingu innan bankans en meðalaldur starfsfólks Arion banka er 42 ár.
Fjölmargt starfsfólk hefur sýnt bankanum og forverum hans mikla tryggð og eru dæmi um að starfsfólk sé með meira en 40 ára starfsaldur. Meðal starfsaldur hjá Arion banka er tíu ár.

Sölustjóri á fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviði
Við leitum að metnaðarfullum og kraftmiklum aðila í starf sölustjóra á fyrirtækja- og fjárfestingarbankasvið. Sölustjóri ber ábyrgð á að leiða sölustarf fyrirtækjasviðs, taka virkan þátt í markaðsstarfi og kynningar á nýjum og núverandi vörum. Viðkomandi mun starfa náið með teymisfélögum, markaðsdeild og öðrum lykilaðilum innan bankans og ber jafnframt ábyrgð á sölumarkmiðum sviðsins.
Sölustjóri er hluti af teyminu þróun og vörustýring á fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviði. Helstu markmið teymisins eru að auka skilvirkni í þjónustu við fyrirtæki, stuðla að þróun stafrænna lausna og auka ánægju og tryggð viðskiptavina.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á sölustefnu, söluáætlunum og greiningu á þörfum fyrirtækjaviðskiptavina, ásamt því að finna framtíðartækifæri og styrkja notkun á vörum og lausnum fyrirtækjasviðs.
- Stýra söluferli, verðlagningu, tilboðsgerð og eftirfylgni til að tryggja að sölumarkmið náist og að lausnir bankans skili viðskiptavinum ávinningi.
- Leiða herferðir og söluaðgerðir í samstarfi við markaðsdeild og önnur teymi, þar á meðal skipulag, framkvæmd og árangursmælingar.
- Vinna þvert á svið, m.a. með ábyrgðaraðilum vöruþróunar, markaðsdeild og þjónustuteymum, til að tryggja góða þjónustu og árangur í sölustarfi.
- Fylgjast með þróun, samkeppni og tækifærum á markaði fyrir fyrirtækjalausnir og leggja til umbætur og nýjar nálganir í sölu og þjónustu.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla af sölu, sölustýringu eða samskiptum við stærri fyrirtækjaviðskiptavini
- Þekking og reynsla á fjármálamarkaði og vöruúrvali er kostur.
- Framúrskarandi samskipta- og samvinnufærni.
- Drifkraftur, fumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
Auglýsing birt5. mars 2026
Umsóknarfrestur15. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Borgartún 19, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

A4 Kringlan - Helgarstarf
A4

Viðburða- og verkefnastjóri knattspyrnudeildar Hauka
Knattspyrnufélagið Haukar

Afgreiðslu og sölufulltrúi í Reykjavík
Avis og Budget

Sölufulltrúi Reykjanesbæ - Fullt starf
Heimilistæki / Tölvulistinn

Sölufulltrúi - Hlutastarf/Sumarstarf
Tölvulistinn

Part Time Sales Assistant
Sports Direct Lindum

Skemmtileg sumarstörf hjá Ísbílnum!
Ísbíllinn ehf.

Starfsmaður í helgarvinnu og aukavaktir
Polarn O. Pyret

Sölufulltrúi
Á91 ehf.

Sölumanneskja
Core Ehf

Sölufulltrúi - fullt starf
Freyja

Sölumaður / Útkeyrslumaður
Góa-Linda sælgætisgerð