
APRÓ
APRÓ er nútímaupplýsingatæknifyrirtæki byggt á grunni þriggja leiðandi íslenskra tæknifyrirtækja: Andes, Prógramm og Miracle. Með yfir 80 framúrskarandi sérfræðinga sameinum við áratugareynslu og nýjustu tækniþekkingu í hugbúnaðarþróun, skýjaþjónustu, gagnatækni og gervigreind.
Við erum stolt af því að vinna að verkefnum sem hafa raunveruleg áhrif á samfélagið, með fjölbreyttum viðskiptavinum – allt frá stórum stofnunum til nýsköpunarfyrirtækja. Hjá APRÓ finnur þú vinnustað þar sem samvinna, faglegur vöxtur og vellíðan starfsfólksins eru í forgrunni.

Sérfræðingur í þjónustu og upplifun
APRÓ leitar að lausnamiðuðum einstaklingi í starf sérfræðings í þjónustu og upplifun (e. Customer Success). Viðkomandi mun gegna lykilhlutverki í innleiðingu og þjónustu við APRÓ Vitann, nýrri gervigreindarlausn sem er í þróun hjá okkur.
Starfið heyrir undir gervigreindar- og gagnateymi APRÓ. Hlutverkið krefst ekki forritunarkunnáttu, heldur snýst það um að brúa bilið milli þróunarteymis og viðskiptavina svo þeir fái sem mest virði út úr lausninni. Þetta er kjörið tækifæri fyrir einstakling sem er að stíga sín fyrstu skref í tæknigeiranum, þar sem við bjóðum upp á frábært umhverfi til að læra og vaxa í starfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vera lykiltengiliður við viðskiptavini og styðja þá við innleiðingu og notkun kerfisins
- Greina þarfir notenda og ramma inn verkefni
- Fylgjast með því hvernig varan er nýtt og greina tækifæri til umbóta
- Byggja upp varanleg og traust viðskiptasambönd með framúrskarandi þjónustu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi
- Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum, jákvæðni og rík þjónustulund
- Góður tækniskilningur - reynsla úr tæknigeiranum eða sambærilegu starfi er kostur
- Skipulögð vinnubrögð og færni til að fylgja málum eftir frá upphafi til enda
- Mikill áhugi á tækni, nýsköpun og gervigreind
- Framúrskarandi færni í íslensku og ensku
Fríðindi í starfi
- Kaupréttaráætlun
- Sveigjanlegur vinnutími
- Árlegur heilsustyrkur
- Samgöngustyrkur
- Mötuneyti, drykkir og snarl á vinnustað
- Starfsmannafélag og reglulegir viðburðir
Auglýsing birt11. mars 2026
Umsóknarfrestur22. mars 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Urðarhvarf 8, 203 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
Mannleg samskiptiSkipulagÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Gjaldkeri
Eignaumsjón hf

Full-stack forritari
Total Tempo ehf.

Hefur þú áhuga á vöruþróun, umbótum og verkefnastýringu?
Arion banki

Sumarstarf í lífeyrisþjónustu í Fjallabyggð
Arion banki

Afgreiðslu og sölufulltrúi - Keflavík
Camper Iceland

Spennandi starf fyrir hjúkrunafræðing innan heilbrigðistækni
STOÐ

Viðskiptastjóri orku og grænna lausna
Íslandsstofa

Full-Stack forritari í menntatækni
InfoMentor ehf

Viðskiptastjóri - Novo Nordisk
Vistor

Verkefnastjóri stafrænnar þróunar
Intellecta

Tæknilegur verkefnastjóri
Farice ehf

Söluráðgjafi - fyrirtækjalausnir Creditinfo
Creditinfo