Gæsla á upplifunarsvæði - Hlutastarf
Bláa Lónið leitar eftir jákvæðum og metnaðarfullum starfsmönnum til að sinna gæslu á upplifunarsvæðum. Meginhlutverk gæslumanna er að gæta að öryggi gesta í og við baðlónin okkar. Mikil áhersla er lögð á öryggisþjálfun gæslumanna og þurfa þeir að standast hæfnispróf í sundi.
Jákvætt hugarfar, ábyrgð og öflug liðsheild einkenna teymi gæslumanna Bláa Lónsins.
Hæfniskröfur:
- Þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
- Áreiðanleiki, samviskusemi og stundvísi
- Sjálfstæði, metnaður og yfirvegun til að takast á við krefjandi verkefni
- Góð enskukunnátta nauðsyn og þekking á öðrum tungumálum er kostur
- Æskilegt er að viðkomandi hafi náð a.m.k. 21 árs aldri
- Starfið hentar öllum kynjum.
Um kvöldvaktir í hlutastarfi er að ræða og unnið er í 2-2-3 vaktarkerfi.
Umsóknarfrestur er til og með 13. Janúar, 2025.
Bláa Lónið er lifandi, skemmtilegur og fjölbreyttur vinnustaður þar sem áhersla er lögð á sífellda þróun og nýsköpun. Með framúrskarandi samvinnu allra starfsmanna er markmiðið að skapa einstaka upplifun fyrir gesti.
_______________________________________________________________
Blue Lagoon is looking for positive, ambitious, team-oriented individuals to serve as lifeguards at our experience. A Blue Lagoon lifeguard's primary role is to ensure guests' safety in and around our lagoons. We emphasize the safety training of lifeguards, who must pass a proficiency test in swimming.
A positive attitude, responsibility and strong teamwork characterize the lifeguards of Blue Lagoon
Qualifications:
- Excellent interpersonal skills
- Reliability, conscientiousness, and punctuality
- Independence, ambition, and a willingness to take on challenges
- Good English skills. Knowledge of other languages is an advantage
- Applicants must be at least 21 years old
- The job is suitable for all genders.
The position is part time job in evening shifts and based on a 2-2-3 shift schedule.
We are accepting applications until January 13th, 2025.
Home to a wonder of the world, Blue Lagoon Iceland cultivates a cooperative, diverse, fun, family-friendly workplace where the emphasis is on creating unforgettable guest experiences.