Expert ehf.
Expert ehf.

Gæðaeftirlit og viðgerðir

Expert ehf. óskar eftir að ráða til starfa aðila á þjónustuverkstæði. Við leitum að starfsmanni sem er laghentur og fellur vel að góðum hópi starfsfólks okkar.

Starfssvið:

Gæðaeftirlit, viðhald, viðgerðir og uppsetningar á kælum, bjórkrönum og kaffitækjum ásamt þjónustuheimsóknum til viðskiptavina.

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af viðgerðum og viðhaldi tækjabúnaðar.
  • Drifkraftur og skipulagshæfni.
  • Framúrskarandi hæfni í samskiptum.
  • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi.

Vinnutími:

Unnið er á vöktum sem skiptast þannig að eina viku er unnið frá 08:00-16:00 og næstu viku er unnið frá 13:00 til 21:00 ásamt aðliggjandi helgi sem er frá 09:00-21:00 (7 dagar).

Laun:

Í boði eru góð laun fyrir réttan aðila.

Um Expert:

Expert ehf. þjónustar mörg af stærri fyrirtækjum landsins. Hjá Expert og tengdum félögum starfa nú um 40 starfsmenn við gott starfsumhverfi og virkt starfsmannafélag. Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um starfið.

Sendið inn ferilsskrá hér á Alfred.is.

Auglýsing birt1. júní 2022
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Dragháls 14-16 14R, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar