Kópavogsbær
Kópavogsbær
Kópavogsbær

Frístundaleiðbeinandi í Jemen

Félagsmiðstöðin Jemen óskar eftir að ráða frístundaleiðbeinendur í 39-79% starfshlutfall frá og með lok ágúst næstkomandi.

Frístundaleiðbeinandi vinnur faglegt starf með börnum og unglingum í frístundastarfi. Hann hefur umsjón með og skipuleggur hópastarf og verkefni tengdum menningar, félags- og forvarnarstarfi félagsmiðstöðvanna. Hann vinnur í anda lýðræðis á starfsstaðnum og vinnur markvisst að því að auka sjálfstæði, ábyrgð og virkni þeirra sem taka þátt í starfinu.

Menntunar- og hæfniskröfur
Diplómanám í tómstundafræðum eða sambærilegu námi æskilegt.
Reynsla af störfum með börnum og unglingum æskileg.
Færni í mannlegum samskiptum.
Frumkvæði og sjálfstæði í störfum.
Skipulögð og fagleg vinnubrögð.
Kunnátta í íslensku æskileg.
Helstu verkefni og ábyrgð
Skipuleggur og hefur umsjón með ákveðnum hópum, verkefnum og viðburðum tengdum menningar-, félags- og tómstundastarfi í félagsmiðstöðvum í samstarfi við forstöðumann og aðra starfsmenn.
Vinnur faglegt starf með börnum og unglingum í frístundastarfi.
Vinnur markvisst að því að auka sjálfstæði, ábyrgð og virkni þeirra sem taka þátt í starfseminni.
Vinnur samkvæmt 1. og 2. stigs forvörnum í öllu starfi félagsmiðstöðvarinnar.
Vinnur í anda lýðræðis á starfsstaðnum og stuðlar að því að börn og unglingar eigi greiðan aðgang að lýðræðislegum ákvörðunum um starfsemi félagsmiðstöðvar.
Hefur umsjón með skipulögðu frístundastarfi ólíkra hópa barna og unglinga í samræmi við þeirra þarfir.
Sinnir öðrum þeim verkefnum sem honum kunna að vera falin af yfirmanni og fellur undir hans starfssvið.
Auglýsing birt19. maí 2022
Umsóknarfrestur9. júní 2022
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Núpalind 7, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar