
Framkvæmdastjóri Lágafellssóknar í 80% starf
Lágafellssókn auglýsir laust til umsóknar 80% starf framkvæmdastjóra Lágafellssóknar. Framkvæmdastjóri starfar í umboði sóknarnefndar Lágafellssóknar í samræmi við starfsreglur um söfnuði og sóknarnefndir nr.16/2021-2022, sbr. starfsrgl. nr. 16/2022-2023. Starfshlutfallið er 80% og er ráðning ótímabundin. Viðkomandi þarf að geta hafið störf ekki síðar en 1. ágúst n.k.
Ber ábyrgð á rekstri sóknarinnar þ.m.t.
- Gerð fjárhagsáætlana í samráði við sóknarnefnd og sóknarprest
- Innheimtu reikninga
- Greiðslu reikninga
- Launagreiðslur Upplýsir sóknarnefnd og starfsfólk um framvindu rekstrar í samræmi við áætlanir
- Hefur eftirlit með bókhaldi og afstemmingum
Ber ábyrgð á mannauðsmálum starfsfólks sóknarinnar
- Ráðningar eru unnar í samráði við sóknarnefnd og sóknarprest
Umsjón með kirkjugörðum
Umsjón með fasteignum sóknarinnar og húsfélagi í Þverholti
Situr sóknarnefndarfundi og ritar fundargerðir
Viðeigandi háskólamenntun sem nýtist í starfi
Reynsla og þekking af reikningshaldi og áætlanagerð
Stjórnunarreynsla
Leiðtogahæfni og metnaður til að ná árangri í starfi
Mikil hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót
Frumkvæði og áræðni
Skipulagshæfni
Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
Góð íslensku- og enskukunnátta
Vilji til að helga sig sýn og gildum Þjóðkirkjunnar
Íslenska
Enska










