Eygló
Eygló

Framkvæmdastjóri

Stjórn Eyglóar leitar að drífandi og jákvæðum leiðtoga til að leiða samstarfsverkefnið Eygló til ársloka 2026. Leitað er að framúrskarandi einstaklingi með brennandi áhuga á nýsköpunarverkefnum á sviði hringrásarhagkerfisins, orkuskipta og loftslagsmála. Starfið felst í umsjón með daglegum rekstri Eyglóar og ábyrgð á öflun nýrra verkefna og verkefnastjórn á alþjóðlegum nýsköpunar- og þróunarverkefnum. Óskað er eftir að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Búseta á Austurlandi er skilyrði og mun starfsstöð taka mið af búsetu viðkomandi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með daglegum rekstri Eyglóar 
  • Stefnumótun og áætlanagerð 
  • Ábyrgð á öflun nýrra verkefna 
  • Verkefnastjórnun og eftirfylgni 
  • Samskipti og samstarf við hagaðila 
  • Koma fram fyrir hönd Eyglóar og kynna starfsemi verkefnisins
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Meistarapróf sem nýtist í starfi 
  • Haldbær reynsla og þekking af stjórnun, rekstri og áætlanagerð  
  • Leiðtogahæfni og drifkraftur 
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum 
  • Frumkvæði og sjálfstæði 
  • Reynsla innan stjórnsýslunnar er kostur 
  • Reynsla af þátttöku í Evrópuverkefnum er kostur 
  • Góð tungumálakunnátta 
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
Auglýsing birt2. október 2023
Umsóknarfrestur15. október 2023
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁætlanagerðPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StefnumótunPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar