Salurinn Tónlistarhús Kópavogs
Salurinn Tónlistarhús Kópavogs
Salurinn Tónlistarhús Kópavogs

Forstöðumaður Salarins

Viltu móta nýja tíma í einu glæsilegasta tónlistarhúsi landsins?

Salurinn er eitt eftirsóttasta tónlistarhús landsins og hefur hlotið einróma lof fyrir einstakan hljómburð og fjölbreytta notkunarmöguleika. Kópavogsbær stefnir á enn frekari sókn í tónleika- og viðburðahaldi og mótun nýrra tækifæra og leitar að öflugum stjórnanda til að leiða Salinn inn í þessa nýju og spennandi tíma. Um er að ræða fágætt tækifæri fyrir listrænan og hugmyndaríkan einstakling með brennandi áhuga á að efla tónlistar- og menningarupplifun Kópavogsbúa og annarra gesta.

Salurinn hentar afar vel til fjölbreytts tónleikahalds, viðburða, ráðstefnu- og fundahalda og er kjörinn vettvangur fyrir hvers kyns móttökur, smáar sem stórar. Salurinn er búinn nýlegum tækjabúnaði og hljóðupptökuveri.

Forstöðumaður Salarins heyrir undir forstöðumann menningarmála. Hann vinnur náið með forstöðumönnum annarra menningarhúsa bæjarins að sameiginlegum viðburðum, kynningu og markaðssetningu. Salurinn starfar samkvæmt menningarstefnu Kópavogsbæjar.

Forstöðumaður er ráðinn til 5 ára í senn með möguleika á framlengingu.

Nánari upplýsingar um Salinn má nálgast hér

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Mótar listræna stefnu Salarins og ber ábyrgð á metnaðarfullu tónleika- og viðburðahaldi
  • Ber rekstrarlega og stjórnunarlega ábyrgð á Salnum
  • Ber ábyrgð á útleigu og mótun nýrra tækifæra í starfsemi Salarins
  • Ber ábyrgð á kynningar- og markaðsmálum Salarins
  • Undirbýr og vinnur að fjárhags-, launa- og rekstraráætlun Salarins í samstarfi við forstöðumann menningarmála
  • Ber ábyrgð á öflun sértekna og styrkja
  • Þátttaka í almennri stefnumótun menningarmála Kópavogsbæjar
  • Samskipti og samstarf við aðrar menningarstofnanir bæjarfélagsins og aðra hagaðila
  • Samskipti og samstarf við grunn- og leikskóla bæjarins
  • Ber ábyrgð á samskiptum við rekstraraðila í veitingasölu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Menntun á sviði tónlistar er æskileg
  • Skýr fagleg sýn á þróun og framtíð Salarins
  • Umtalsverð reynsla af rekstri og stjórnun er skilyrði
  • Umtalsverð þekking á ólíkum tónlistarstefnum æskileg
  • Þekking eða reynsla af starfsemi innan menningarstofnunar er kostur
  • Reynsla af skipulagningu ráðstefnu, funda og móttökum er kostur
  • Hugmyndaauðgi og listrænt innsæi
  • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
  • Leiðtogafærni og lausnamiðuð nálgun
  • Jákvætt viðmót og mikil lipurð í mannlegum samskiptum
  • Geta til að vinna undir álagi og í fjölbreyttum verkefnum á sama tíma
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
Auglýsing birt3. október 2023
Umsóknarfrestur27. október 2023
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Hamraborg 6, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar