
VÍS
VÍS er framúrskarandi vinnustaður með einstaka vinnustaðamenningu.
Við erum fyrirmyndarfyrirtæki, leggjum áherslu á jafnrétti og höfum útrýmt launamun kynjanna.
Við sköpum tækifæri fyrir starfsfólkið okkar til þess að vaxa og dafna – í lífi og starfi. Við bjóðum upp á nýsköpunarumhverfi og elskum hugrekki.
VÍS ætlar að breyta því hvernig tryggingar virka og þannig fækka slysum og tjónum. Við leggjum ríka áherslu á sjálfbærni því við vitum að það er framtíðin.

Forstöðumaður fyrirtækjaviðskipta
Ert þú leiðtoginn sem við leitum að?
Við leitum að öflugum leiðtoga í stjórnendateymi VÍS til að leiða fyrirtækjaviðskipti, teymi sem sinnir framúrskarandi viðskiptastýringu, sölu og þjónustu við fyrirtæki um land allt.
Hlutverk fyrirtækjaviðskipta er að bera ábyrgð á nýsölu og endurnýjun fyrirtækja en einnig að sinna samstarfi á sviði forvarna hjá fyrirtækjum.
Viðkomandi þarf að hafa brennandi áhuga á sölu og að rækta og viðhalda langtíma viðskiptasamböndum.
Saman ætlum við að vera leiðandi í sölu og þjónustu um land allt.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á sóknartækifærum á fyrirtækjamarkaði
- Ábyrgð á viðskiptastýringu, ráðgjöf, sölu og þjónustu við fyrirtæki
- Leiða umbótastarf sem færir þjónustu við fyrirtæki yfir í stafrænar lausnir
- Móta jákvætt og hvetjandi starfsumhverfi og leiða hóp starfsmanna í átt að markmiðum
- Ábyrgð á forvarnarsamstarfi við fyrirtæki
Menntunar- og hæfniskröfur
- Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfni
- Þekking og reynsla af viðskiptastýringu á fyrirtækjamarkaði
- Umtalsverð reynsla af stjórnun
- Þekking og skilningur á rekstri fyrirtækja og atvinnulífinu
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Fríðindi í starfi
- Framúrskarandi vinnustað með einstaka vinnustaðamenningu
- Virkt starfsmannafélag sem veitir m.a. aðgang að orlofshúsum
- Árlegur líkamsræktarstyrkur
- Frábært mötuneyti
- Samgöngustyrkur vegna vistvænna samgangna
- Heilsufarsskoðun, bólusetning og heilsueflandi fræðsla
- Tækifæri til þess að vaxa og dafna – í lífi og starfi
Auglýsing birt16. mars 2026
Umsóknarfrestur26. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Ármúli 3, 108 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Fjármála- og stjórnsýslusvið – Forstöðumaður reikningshalds
Reykjanesbær

Deildarstjóri þjónustudeildar á Norðursvæði
Vegagerðin

Deildarstjóri þjónustudeildar á Vestursvæði
Vegagerðin

Deildarstjóri umsjónardeildar á Austursvæði
Vegagerðin

Rekstrarstjóri
Alva Hotels

Fjármála- og rekstrarsvið í ferðaþjónustufyrirtæki
Eskimos Iceland

Deildarstjóri hjá Klettabæ
Klettabær

Viltu stýra ört stækkandi gagnaveri hjá spennandi alþjóðlegu fyrirtæki?
atNorth

Deildarstjóri Farþegaþjónustu
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Framleiðslustjóri
Freyja

Skipulagsfulltrúi
Sveitarfélagið Hornafjörður

Forstöðumaður UT reksturs
Hagar