
Fjármála- og rekstrarsvið í ferðaþjónustufyrirtæki
Eskimos leitar að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi til starfa á fjármála og rekstrarsviði fyrirtækisins.
Við leitum að einstaklingi með áhuga og metnað til að starfa á sviði fjármála og rekstrar og taka virkan þátt í áframhaldandi vexti og þróun félagsins. Starfið felur í sér að styðja við arðsemi og skilvirkni rekstrar, bætta nýtingu fjármuna og markvissa uppbyggingu til framtíðar.
Starfið hentar bæði þeim sem eru í upphafi ferils síns og vilja byggja upp þekkingu og reynslu, sem og þeim sem búa yfir dýpri starfsreynslu á sviði fjármála og rekstrarstjórnunar.
Um er að ræða ábyrgðarmikið og fjölbreytt starf þar sem þú færð tækifæri til að axla ábyrgð, þróast í starfi og vinna í nánu samstarfi við eigendur og framkvæmdastjóra.
Um fyrirtækið:
Eskimos er ferðaskrifstofa staðsett í Reykjavík sem samanstendur af metnaðarfullu og fjölbreyttu teymi.
Við vinnum saman að því að skapa ógleymanlegar ferðir fyrir gesti okkar með áherslu á sveigjanleika, fagmennsku og góð samskipti.
Virkilega skemmtilegur vinnustaður með góðum starfsanda.
- Yfirumsjón með bókhaldi, afstemmingum, uppgjöri og gerð ársreikninga
- Gerð og framkvæmd fjárhagsáætlana og greiðsluáætlana
- Fjármálagreiningar, kostnaðargreiningar, arðsemisgreiningar og skýrslugerð til stjórnenda
- Eftirlit með kostnaði, innheimtu, gjöldum og lausafé
- Samskipti við endurskoðendur, banka, lánardrottna og opinberar stofnanir
- Þátttaka í stefnumótun og ákvarðanatöku sem snýr að rekstri
(Verkefni munu þróast og aukast í takt við reynslu, áhuga og ábyrgð viðkomandi.)
- Menntun og/eða reynsla á sviði fjármála, rekstrar, viðskipta eða sambærilegs náms
- Framúrskarandi skipulagshæfni, sjálfstæði og ábyrgðartilfinning
- Góð tölvukunnátta (t.d. Excel, bókhaldskerfi, Power BI)
- Metnaður, jákvætt hugarfar og vilji til að takast á við áskoranir
- Geta til að leiða breytingar og vinna með teyminu
Íslenska
Enska










