
Reykjanesbær
Reykjanesbær er fjölskylduvænn bær sem þroskar og nærir hæfileika allra í gegnum öflugt skóla-, íþrótta-, og menningarstarf. Íbúar sinna fjölbreyttum störfum í vistvænu fjölmenningarsamfélagi sem einkennist af framsækni, eldmóði og virðingu.
Reykjanesbær hefur að markmiði að hafa ávallt á að skipa hæfum og
ánægðum starfsmönnum sem geta sýnt frumkvæði í störfum sínum og veitt bæjarbúum framúrskarandi þjónustu. Það er sameiginlegt verkefni starfsmanna og stjórnenda sveitarfélagsins að veita bæjarbúum sem allra besta þjónustu og sú samvinna byggir á gagnkvæmu trausti og virðingu fyrir ólíkum
sjónarmiðum.

Fjármála- og stjórnsýslusvið – Forstöðumaður reikningshalds
Reykjanesbær leitar að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi til að leiða reikningshald sveitarfélagsins. Forstöðumaður reikningshalds gegnir lykilhlutverki í fjármálastjórn bæjarins og ber ábyrgð á bókhaldi Reykjanesbæjar og stofnana og sveitarfélagsins í heild. Forstöðumaður gegnir einnig mikilvægu hlutverki í uppgjörum, greiningu og fjármálastjórn sveitarfélagsins.
Við leitum að einstaklingi með sterka faglega þekkingu og metnað til að stuðla að faglegu og skilvirku rekstrarumhverfi. Forstöðumaður reikningshalds starfar í nánu samstarfi við fjármálastjóra og aðra stjórnendur og tekur virkan þátt í áframhaldandi þróun fjármálastjórnunar Reykjanesbæjar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Yfirumsjón, eftirlit og ábyrgð á bókhaldi Reykjanesbæjar og stofnana
- Dagleg stýring og utanumhald reikningshalds sveitarfélagsins
- Umsjón með fjárhagskerfinu Navision
- Afstemmingar og lokafrágangur mánaðaruppgjöra
- Vinna við árshlutauppgjör og ársreikninga í samstarfi við fjármálastjóra
- Skýrslugerð, greiningar og upplýsingagjöf úr bókhaldi
- Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur og starfsfólk í bókhalds- og uppgjörsmálum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun í viðskiptafræði eða sambærileg menntun
- Reynsla af bókhaldi og uppgjörsvinnu skilyrði
- Reynsla á endurskoðunarskrifstofu kostur
- Reynsla af gerð ársreikninga og samstæðureikninga æskileg
- Þekking á lögum og reglum um bókhald og reikningsskil skilyrði
- Greiningarhæfni, nákvæmni og skipulag í vinnubrögðum
- Frumkvæði, sjálfstæði og góð samskiptahæfni
Hlunnindi:
- Bókasafnskort
- Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum
- Gjaldfrjáls aðgangur í sund
- Gjaldfrjáls aðgangur í strætó
Auglýsing birt16. mars 2026
Umsóknarfrestur30. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Grænásbraut 910, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
Almenn tæknikunnáttaFrumkvæðiGreiningarfærniMannleg samskiptiMicrosoft ExcelNákvæmniOpinber stjórnsýslaSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðUppgjör
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Tæknilegur bókari
Sessor

Forstöðumaður fyrirtækjaviðskipta
VÍS

Umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi
Sveitarfélagið Skagafjörður

Ársreikningagerð, uppgjörsvinnsla og gerð skattframtala
Debet endurskoðun og ráðgjöf

BÓKHALD - Ferðaskrifstofa
Eskimos Iceland

Sumarstarf á fjármálasviði
Hafnarfjarðarbær

Forstöðumaður UT reksturs
Hagar

Forstöðumaður reksturs tengivirkja
Landsnet

Umhverfis- og framkvæmdasvið - Verkefnastjóri samgöngumála
Reykjanesbær

Velferðarsvið - Félagsráðgjafi - Sérfræðingur í Barnavernd
Reykjanesbær

Bókhald
Debet endurskoðun og ráðgjöf

Bókari/uppgjörsaðili
HSE Bókhald & Uppgjör ehf.