

Forstöðumaður vöruvals og innkaupa
Við leitum að framsæknum og metnaðarfullum aðila til að ganga til liðs við öflugan hóp starfsfólks ÁTVR. Vöruval og innkaup ber ábyrgð á vöruvalskerfi ÁTVR og þróun þess. Í því felst að móta reglur um vöruval, annast innkaup í takt við eftirspurn viðskiptavina og annast samskipti við birgja.
Við leitum að lausnamiðuðum leiðtoga sem hefur hæfni til að hvetja teymi til árangurs og leiða breytingar og umbætur. Viðkomandi þarf að hafa góða samskiptafærni og eiga auðvelt með að byggja upp árangursríkt samstarf við fjölbreyttan hóp samstarfsfólks og birgja. Mikilvægt er að viðkomandi hafi góða færni í greiningu og framsetningu gagna og leggi áherslu á gagnadrifna ákvarðanatöku.
Starfið heyrir undir framkvæmdastjóra Vörustýringar og dreifingar.
Verkefni og ábyrgð
- Leiða teymi vöruvals og innkaupa
- Þróun og viðhald vöruvalskerfis
- Tryggja fylgni við lög og reglur um vöruval og innkaup
- Greina söluárangur, markaðsþróun og væntingar viðskiptavina
- Tryggja fagmennsku, gagnsæi og jafnræði í samskiptum við birgja
- Tryggja skilvirk innkaup og vörustýringu til Vínbúða
- Nýta tækfæri til umbóta og innleiðing stafrænna lausna
- Markmiðasetning og mat á árangri
- Byggja upp vöruþekkingu og miðla til starfsfólks
- Hafa umsjón með gæðamálum og lögfræðilegum málefnum tengdum vöruvali og innkaupum
Hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Að minnsta kosti þriggja ára stjórnunarreynsla
- Góð leiðtogafærni og áhersla á árangur
- Reynsla af vörustýringu, innkaupum eða sambærilegum verkefnum
- Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Greiningarhæfni og geta til að hagnýta gögn við ákvarðanatöku
- Rík þjónustulund og góð samskiptafærni
- Hæfni til að miðla upplýsingum á skýran og markvissan hátt
- Hæfni til að skapa traust og eiga fagleg samskipti við hagsmunaaðila
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta
- Mjög góð tölvukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Starfshlutfall er 100%.
Umsóknarfrestur er til og með 7.12.2026.
Öll áhugasöm eru hvött til að sækja um starfið á www.vinbudin.is.
Umsókn um starfið skal fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Nánari upplýsingar veitir Thelma Kristín Snorradóttir – [email protected].
ÁTVR rekur 48 Vínbúðir um allt land. Stefna fyrirtækisins er að vera í hópi bestu þjónustufyrirtækja landsins og fyrirmynd á sviði samfélagsábyrgðar.
Við viljum að vinnustaðurinn sé lifandi og skemmtilegur og vinnum markvisst að því að auka ánægju starfsfólks.
Við leggjum áherslu á að starfsfólk fái tækifæri til að þroskast og læra nýja hluti. Þannig eflum við þekkingu og kraft fyrirtækisins.
Íslenska
Enska




