

Deildarstjóri Farþegaþjónustu
Við hjá Isavia leitum að drífandi og framsýnum leiðtoga til að leiða Farþegaþjónustu og PRM á Keflavíkurflugvelli. Meginhlutverk deildarinnar er þjónusta og aðstoð við farþega sem fara í gegnum Keflavíkurflugvöll. PRM þjónustan tryggir fötluðum og farþegum með skerta hreyfigetu þá aðstoð sem þeir þurfa við komu og brottför. Auk þess er hlutverk Farþegaþjónustu að tryggja skilvirkt flæði, gæði, þjónustu og samhæfð viðbrögð í daglegum rekstri.
Deildarstjóri Farþegaþjónustu ber ábyrgð á daglegum rekstri deildarinnar, með áherslu á að tryggja góða upplifun farþega með skilvirku flæði, þjónustu og öruggri og faglegri aðstoð við farþega með skerta hreyfigetu (PRM).
Viðkomandi hefur einnig það mikilvæga hlutverk að viðhalda og stuðla að góðri og uppbyggjandi menningu og starfsumhverfi.
Helstu verkefni:
- Ábyrgð á daglegum rekstri og stjórnun deildarinnar
- Styður hópstjóra og annað starfsfólk deildarinnar við að ná markmiðum og tryggja skilvirka þjónustu við farþega
- Ber ábyrgð á að skipulag og framkvæmd PRM þjónustu sé í samræmi við reglugerðir og þjónustustaðla
- Ber ábyrgð á að setja fram mælikvarða, greina afkastagetu og stuðla að sífelldum úrbótum
- Ber ábyrgð á gerð og eftirfylgni rekstraráætlana og mannaflaspár
- Ber ábyrgð á gerð ferla og verklagsreglna
- Aðkoma og áhrif á skipulag og þróun farþegaflæðis innan flugstöðvar
- Samhæfing þjónustu með öðrum einingum innan Isavia og ytri aðilum
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Leiðtogafærni og framúrskarandi samskiptafærni
- Reynsla af stjórnunarstarfi æskileg
- Reynsla af rekstrartengdri vinnu, svo sem áætlanagerð, kostnaðargreiningum, fjárhagsstýringu og eftirfylgni með rekstrarárangri
- Mjög góð hæfni til að leiðbeina og hvetja starfsfólk
- Góð íslensku- og enskukunnátta, í ræðu og riti
Starfsstöð er á Keflavíkurflugvelli en Isavia býður starfsfólki sínu upp á rútuakstur milli höfuðborgarsvæðis og flugvallar.
Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.
Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar, farsímaáskrift og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.
Umsóknarfrestur er til og með 27.mars 2026.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Jófríður Leifsdóttir forstöðumaður Flugstöðvarþjónustu, í gegnum netfangið [email protected].
Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem fram kemur hvernig reynsla og hæfni nýtist í starfi ásamt því hvað í starfinu vekur áhuga og eldmóð.
Við hvetjum áhugasama aðila til að sækja um.
Íslenska
Enska







