Borgarbyggð
Borgarbyggð
Borgarbyggð

Forstöðumaður Frístundar á Hvanneyri

Borgarbyggð óskar eftir að ráða metnaðarfullan og áhugasaman einstakling til starfa í frístundaheimilinu Ólátagarði á Hvanneyri fyrir skólaárið 2022-2023.

Um er að ræða 60% starf, unnið er samkvæmt gæðaviðmiðum í frístundarstarfi.

Við leggjum mikið uppúr lýðræðisþátttöku barna, vinnum í opnu starfi, klúbbum og sértæku hópastarfi.

Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun og/eða reynsla á sviði uppeldis, félags- eða tómstundamála er kostur.
Mikilvægt að hafa áhuga á að starfa með börnum.
Frumkvæði, skipulagshæfileikar, jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum.
Reynsla af starfi með börnum
Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Borgarbyggðar.
Góð íslenskukunnátta.
Helstu verkefni og ábyrgð
Daglegur rekstur, skipulagning og umsjón með frístundarstarfi fyrir 1.-4.bekk á Hvanneyri í samráði við Tómstundafulltrúa.
Skipulagning starfsins í samráði við börn og starfsfólk.
Utanumhald yfir skráningar og samskipti við foreldra og aðra sem koma að frístundarstarfinu.
Skipulag og utanumhald með sumarfjöri sem er leikjanámskeið fyrir börn í 1.-4 bekk.
Þátttaka í að móta stefnu og framtíðarsýn.
Auglýsing birt30. júní 2022
Umsóknarfrestur3. ágúst 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Hvanneyri, 311 Hvanneyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Skipulag
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar