Sveitarfélagið Skagafjörður
Sveitarfélagið Skagafjörður

Forstöðumaður framkvæmda

Sveitarfélagið Skagafjörður óskar eftir að ráða metnaðarfullan einstakling í starf forstöðumanns framkvæmda. Um nýtt starf er að ræða sem heyrir beint undir sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs. Forstöðumaður mun bera ábyrgð á nýframkvæmdum, gatnagerð og stærri viðhaldsframkvæmdum ásamt því að hafa yfirumsjón með fráveitum í sveitarfélaginu. Forstöðumaður er millistjórnandi og mun garðyrkjudeild, þjónustumiðstöð, eignasjóður og umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi heyra undir hann. Um 100% starf er að ræða og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Ábyrgð á framkvæmdum og viðhaldi á eignum sveitarfélagsins, m.a. fasteignum, fráveitu og gatnakerfi í samráði við sviðsstjóra.
  • Upplýsingaöflun og miðlun, ráðgjöf, skýrslugerð og úttektir.
  • Uppbygging á upplýsingakerfum og gagnagrunnum sveitarfélagsins.
  • Eftirfylgni fjárhagsáætlana.
  • Uppgjör verka og samþykkt reikninga.


Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, s.s. í verk-, bygginga- eða tæknifræði.
  • Framhaldsmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi eða víðtæk stjórnunar- og/eða rekstrar reynsla.
  • Þekking á opinberri stjórnsýslu.
  • Reynsla af fráveitu og verklegum framkvæmdum.
  • Reynsla af rekstri og mannaforráðum.
  • Leiðtogahæfileikar og framúrskarandi samstarfs- og samskiptahæfni.
  • Frumkvæði, sjálfstæði, fagmennska, skipulagshæfni og nákvæmni.
  • Góð almenn tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér tækninýjungar.
  • Gott vald á íslensku í ræðu og riti.
  • Almenn ökuréttindi.
  • Hreint sakavottorð.


Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við Verkfræðingafélag Íslands.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hjörvar Halldórsson, sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs í síma 455 6205 ([email protected]) og Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) í síma 511 1225.

Umsóknarfrestur er til og með 2. maí 2025. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem í stuttu og kjarnyrtu máli er gert grein fyrir kostum umsækjanda sem nýtast í starfi. Jafnframt skulu prófskírteini fylgja umsókn.
Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Auglýsing birt11. apríl 2025
Umsóknarfrestur2. maí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Skagfirðingabraut 17-21, 550 Sauðárkrókur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StarfsmannahaldPathCreated with Sketch.Verkfræðingur
Starfsgreinar
Starfsmerkingar