Borgarbyggð
Borgarbyggð
Borgarbyggð

Forstöðumaður félagsmiðstöðvar

Borgarbyggð óskar eftir að ráða metnaðarfullan og áhugasaman einstakling til starfa í félagsmiðstöðinni Óðal í Borgarnesi. Í Óðal þjónustum við börn og ungmenni á aldrinum 10.-16.ára.

Um er að ræða 80-100% starf.

Meginhlutverk félagsmiðstöðvarinnar Óðals er að bjóða börnum og ungmennum innihaldsríkt tómstundastarf. Í Óðal bjóðum við öllum börnum og ungmennum þátttöku í fjölbreyttu tómstundastarfi með það að markmiði að efla sjálfstraust og félagsfærni þeirra.

Einnig viljum við að bjóða upp á þægilegt umhverfi sem einkennist af öryggi, fagmennsku og virðingu þar sem við leggjum mikla áherslu á jákvæð samskipti og lýðræðislega starfshætti.

Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun á sviði uppeldis, félags- eða tómstundamála.
Mikilvægt að hafa áhuga á að starfa með börnum.
Frumkvæði, skipulagshæfileikar, jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum.
Reynsla af starfi með börnum/ungmennum.
Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Borgarbyggðar.
Góð íslenskukunnátta.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Skipulagning, undirbúningur og framkvæmd félagsmiðstöðvastarfs í samráði við starfsfólk og þátttakendur í starfinu.
Ber ábyrgð á að efla virkni, ábyrgð, sjálfsmynd og sjálfstæði barna og ungmenna í Óðal með fjölbreyttum og aldursviðeigandi viðfangsefnum.
Leita leiða til að ná til þeirra barna sem þurfa stuðning í frístundum sínum og/eða þurfa á félagslegum stuðningi að halda.
Umsjón með Ungmennaráði Borgarbyggðar.
Skipulagning og umsjón með vinnuskóla Borgarbyggðar
Auglýsing birt5. október 2022
Umsóknarfrestur19. október 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Digranesgata 2, 310 Borgarnes
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar